Eiríks saga rauða - 10. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Karlsefni fór suður fyrir land og Snorri og Bjarni og annað lið þeirra. Þeir fóru lengi og til þess er þeir komu að á þeirri er féll af landi ofan og í vatn og svo til sjóvar. Eyrar voru þar miklar fyrir árósinum og mátti eigi komast inn í ána nema að háflæðum.

Sigldu þeir Karlsefni þá til áróssins og kölluðu í Hópi landið. Þar fundu þeir sjálfsána hveitiakra þar sem lægðir voru en vínviður allt þar sem holta kenndi. Hver lækur var þar fullur af fiskum. Þeir gerðu þar grafir sem landið mættist og flóðið gekk efst, og er út féll voru helgir fiskar í gröfunum. Þar var mikill fjöldi dýra á skógi með öllu móti. Þeir voru þar hálfan mánuð og skemmtu sér og urðu við ekki varir. Fé sitt höfðu þeir með sér.

Og einn morgunn snemma er þeir lituðust um sáu þeir níu húðkeipa og var veift trjánum af skipunum og lét því líkast í sem í hálmþústum og fer sólarsinnis.

Þá mælti Karlsefni: "Hvað mun þetta tákna?"

Snorri svarar honum: "Vera kann að þetta sé friðartákn og tökum skjöld hvítan og berum í mót."

Og svo gerðu þeir. Þá reru hinir í mót og undruðust þá og gengu þeir á land. Þeir voru smáir menn og illilegir og illt höfðu þeir hár á höfði. Eygðir voru þeir mjög og breiðir í kinnunum og dvöldust þeir um stund og undruðust, reru síðan í brott og suður fyrir nesið.

Þeir höfðu gert byggðir sínar upp frá vatninu og voru sumir skálarnir nær vatninu en sumir firr. Nú voru þeir þar þann vetur. Þar kom alls engi snjár og allur fénaður gekk þar úti sjálfala.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Eiríks saga rauða - 10. kafli: 277 orð
Tími : 2 mínútur

Eiríks saga rauða: 7.911 orð
Lesin: 6.067 orð
Tími eftir: 8 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...