Eyrbyggja saga - 23. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Vigfús sonur Bjarnar Óttarssonar bjó í Drápuhlíð sem fyrr segir. Hann átti Þorgerði Þorbeinisdóttur. Hann var gildur bóndi og ódældarmaður mikill. Með honum var á vist systursonur hans er Björn hét. Hann var örorður maður og ógegn.

Um haustið eftir Máhlíðingamál fundust stóðhross Þorbjarnar digra á fjalli og hafði hesturinn eigi haldið högum fyrir hesti Þórarins og hafði fennt hrossin og fundust öll dauð.

Þetta sama haust áttu menn rétt fjölmenna í Tungu milli Laxá upp frá Helgafelli. Þangað fóru til réttar heimamenn Snorra goða. Var Már Hallvarðsson föðurbróðir Snorra fyrir þeim. Helgi hét sauðamaður hans. Björn frændi Vigfúss lá á réttargarðinum og hafði fjallstöng í hendi. Helgi dró sauði. Björn spurði hvað sauð það væri er hann dró. En er að var hugað þá var mark Vigfúss á sauðnum.

Björn mælti: "Slundasamlega dregur þú sauðina í dag Helgi."

"Hættara mun yður það," segir Helgi, "er sitjið í afrétt manna."

"Hvað mun þjófur þinn vita til þess," segir Björn og hljóp upp við og laust hann með stönginni svo að hann féll í óvit.

Og er Már sá þetta brá hann sverði og hjó til Bjarnar og kom á höndina upp við öxl og varð það mikið sár. Eftir það hljópu menn í tvo staði en sumir gengu í milli og skildu þá svo að eigi varð fleira til tíðinda þar.

Um morguninn eftir reið Vigfús ofan til Helgafells og beiddi bóta fyrir vansa þenna en Snorri sagði að hann kveðst eigi mun gera þeirra atburða er þar höfðu orðið. Þetta líkaði Vigfúsi illa og skildu þeir með hinum mesta styttingi.

Um vorið bjó Vigfús áverkamálið til Þórsnessþings en Snorri drepið til óhelgi við Björn og urðu þau málalok að Björn varð óheilagur af frumhlaupinu við Helga og fékk engar bætur fyrir áverkann en hann bar í fatla höndina jafnan síðan.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Eyrbyggja saga - 23. kafli: 301 orð
Tími : 2 mínútur

Eyrbyggja saga: 39.459 orð
Lesin: 9.883 orð
Tími eftir: 119 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...