Eyrbyggja saga - 38. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Eftir víg Arnkels voru konur til erfðar og aðildar og var fyrir því eigi svo mikill reki að ger um vígið sem von mundi þykja um svo göfgan mann. En þó var sæst á vígið á þingi og urðu þær einar mannsektir að Þorleifur kimbi skyldi vera utan þrjá vetur því að honum var kennt banasár Arnkels.

En með því að eftirmálið varð eigi svo sæmilegt sem líklegt þótti um svo mikinn höfðingja sem Arnkell var þá færðu landsstjórnarmenn lög á því að aldrei síðan skyldi kona vera vígsakaraðili né yngri karlmaður en sextán vetra og hefir það haldist jafnan síðan.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Eyrbyggja saga - 38. kafli: 101 orð
Tími : 1 mínúta

Eyrbyggja saga: 39.459 orð
Lesin: 20.624 orð
Tími eftir: 76 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...