Fljótsdæla saga - 22. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Það er sagt einn aftan um fardaga sjálfa að þau Guðrún eru komin í rekkju sína.

Þá tekur hann til orða: "Hversu er þess gert við Gunnar félaga þinn að þér þyki vel vera?"

Guðrún svarar: "Það mun eg skjótt segja þér. Skip stendur uppi í Laxárósi það er Gellir son minn hélt hingað í fyrra sumar. Það vil eg láta hlaða þar og búa utan í sumar og hlaða varnaði og góðum reiða. Þetta vil eg gefa honum en Gellir skal sitja eftir í sumar."

Þorkell sagði ekki í móti "því að mikill er ofsi þinn en þó mun enn sem oftar að lítið samþykki mun á verða ef eigi er svo gert sem þú vilt."

Slitu þau talið. Líður af nóttin. En þegar um morguninn lætur Þorkell snemma að vera. Er flotað skipinu en fluttur til mikill varningur og góður. Hafa þau stórkostnað fyrir. En þá er albúið er skipið þá leiða þau Gunnar til, gefa honum skip með rá og reiða og miklum fjárhlut. Gunnar þakkar þeim vel þessa gjöf og marga aðra virðing er þau höfðu honum veitt. Skiljast þau nú allgóðir vinir.

Siglir Gunnar í haf þegar honum gaf byri. Varð hann allvel reiðfara, tók þar land sem hann kaus á og faðir hans átti byggðir fyrir. Gunnar var hersis son en hann réð fyrir Hálogalandi. Þar var honum vel fagnað því að nálega þóttust menn hann úr helju heimtan hafa. Og er það flestra manna sögn og orðtak bæði hér og annars staðar að eigi muni einn maður meir úr öngum ekið hafa en Gunnar, slíkir garpar sem eftir leituðu.

Annað sumar eftir býr Gunnar þetta skip með miklum fjárhlut og sendir út til Íslands með gripum til Þorkels og Guðrúnar Ósvífursdóttir og annarra þeirra er hann þóttist góða hluti eiga að launa. Skipið kemur í Laxárós. Tekur Gellir við skipinu og hefur lengi í ferðum síðan. En Gunnar situr í búi sínu á Hálogalandi og kemur hann lítt við þessa sögu héðan í frá.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Fljótsdæla saga - 22. kafli: 331 orð
Tími : 2 mínútur

Fljótsdæla saga: 27.273 orð
Lesin: 24.466 orð
Tími eftir: 12 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...