Fljótsdæla saga - 25. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Synir Droplaugar komu jafnan að finna móður sína. En ávallt er þeir fóru á millum þá dvöldust þeir á Bessastöðum löngum.

Einn hlutur var sá í fari Bessa að Helga var mjög óþokki að því að Bessi elskaði mjög goðin. Hann var blótmaður mikill og hafði mikinn átrúnað við goðin. Bessa þótti Helgi of lítinn átrúnað vilja hafa á goðunum því að hann gerði sér óþokkað mjög um það.

"Sé eg öngvan þann hlut í þínu fari," segir Helgi, "að þér verði jafnmikil heimska í sem þetta er þú veitir svo mikinn átrúnað undærum þeim er menn gera með höndum sér og bæði eru blind og dauf og mállaus og það skil eg að þau mega hvorki gera sér gagn né öðrum. Og því er eg miklu skemur með þér en eg mundi ella að eg veit einn hversu andstygg mér eru goðin. En alla hluti aðra veitir þú mér með mikilli ástsemd."

Bessi svarar: "Þú værir allra manna spakastur á öllu Íslandi þeirra er nú vaxa upp ef þú legðir þinn trúnað undir þeirra miskunn."

Helgi svarar: "Verði mér aldrei svo illt að eg vænti mér góðs af þeim fjöndum er öngu loða saman nema illu einu."

Skildu nú við svo búið.

Þau Droplaug og Hallsteinn bjuggu saman sjö vetur svo að álitlega var. En svo sem þau bjuggu saman lengur þá harðnaði þeirra samfarir. Gerðust nú óhægindi mikil í búinu en þó stóð mikið fé saman því að Hallsteinn var fémaður mikill. Droplaug sendi oft sonum sínum orð að þeir skyldu koma til að skipta fénu við Hallstein en þeir fresta um hríð.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Fljótsdæla saga - 25. kafli: 265 orð
Tími : 2 mínútur

Fljótsdæla saga: 27.273 orð
Lesin: 25.854 orð
Tími eftir: 6 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...