Fóstbræðra saga - 21. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Þorgrímur trölli Einarsson bjó í Einarsfirði á Löngunesi. Þorgrímur var goðorðsmaður, mikill höfðingi, ríkur og fjölmennur, garpur hinn mesti í skaplyndi. Við Þorgrím bjó systir hans er Þórdís hét. Hana hafði átta sá maður er Hámundur hét. Synir Þórdísar fjórir voru á vist með Þorgrími. Einn þeirra hét Böðvar, annar Falgeir, þriðji Þorkell, fjórði Þórður. Þeir voru allir garpar miklir og frálegir menn. Þórunn hét önnur systir Þorgríms trölla. Hún bjó í Einarsfirði á þeim bæ sem heitir á Langanesi. Hún átti son þann er Ljótur hét, var mikill maður vexti. Allir frændur Þorgríms voru miklir hávaðamenn og ójafnaðarfullir.

Sigríður hét kona er bjó á þeim bæ er að Hamri hét. Sigríður átti gott bú og gagnsamt. Sigurður hét son hennar er að búi var með henni. Sigurður var frálegur maður, vinsæll og lítill hávaðamaður og þótti eigi alla vega jafnt.

Loðinn hét verkþræll í Brattahlíð. Hann var verkmaður góður. Honum fylgdi að lagi kona sú er Sigríður hét. Hún var fengin til að vinna Þormóði. Skemma var í Brattahlíð, eigi áföst húsum, er Þorkell svaf í einn og setumenn hans. Þar brann ljós í skemmunni hverja nótt eftir aðra en annað fólk svaf inni. Nú þótti Loðni Sigríður helsti löngum dveljast í skemmunni á kveldum. Þótti honum hún gá sín minnur en verið hafði. Kom honum þá í hug kviðlingur sá er kveðinn hafði verið um lausungarkonur:

Á hverfanda hveli
voru þeim hjörtu sköpuð,
brigð í brjóst lagið.

Hann ræddi um við Sigríði að hann vill eigi vistir hennar langar í skemmunni á kveldum. Hún svarar honum sem henni var í skapi til.


(Úr Flateyjarbók)

([Þykir honum hún leggja sjaldnar tíu fingur upp sér um háls en verið hafði. Lyftist þá lítt það reiði í sínu rúmi en reiði hvers manns er í galli en líf í hjarta, minni í heila, metnaður í lungum, hlátur í milti, lystisemi í lifur.])


Það barst að einn aftan þá er Þorkell og Þormóður vildu ganga út til skemmu og Sigríður með þeim þá tók Loðinn til Sigríðar og hélt henni en hún togast úr höndum honum. Og er Þormóður sér þetta þá tekur hann í hönd Sigríði og vill kippa henni úr höndum Loðni en það gengur eigi skjótt. Þorkell sér á þrætu þeirra.

Hann mælir við Loðinn: "Lát Sigríði fara leiðar sinnar. Óskuggasamlegt er allt um vistir hennar á kveldunum í skemmunni. Mun eg gæta hennar svo að þér sé skammlaust úti þar og svo henni en þú gæt hennar þess á milli."
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Fóstbræðra saga - 21. kafli: 412 orð
Tími : 2 mínútur

Fóstbræðra saga: 32.966 orð
Lesin: 20.363 orð
Tími eftir: 51 mínúta
Hér er lýsing á kortinu...