Grettis saga - 55. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Grettir fór upp á Arnarvatnsheiði og gerði sér þar skála sem enn sér merki og bjóst þar um því að hann vildi nú hvervetna annað en ræna, fékk sér net og bát og veiddi fiska til matar sér. Honum þótti dauflegt mjög á fjallinu því að hann var mjög myrkfælinn. En er það frétta aðrir skógarmenn að Grettir var þar niður kominn þá var mörgum hugur á að finna hann því að þeim þótti mikið traust að honum.

Grímur hét maður norðlenskur. Hann var sekur. Að þeim manni keyptu Norðlendingar að hann skyldi drepa Gretti og hétu honum frelsi og fégjöfum ef hann kæmi því fram. Hann fór til móts við Gretti og beiddi hann viðtöku.

Grettir svarar: "Eigi þykir mér sem þér sé að hólpnara þó að þú værir hjá mér. Eruð þér og vansénir, skógarmennirnir, en illt þætti mér einum saman að vera ef annars væri kostur. Vil eg og að sá einn sé hjá mér að hann verður að starfa slíkt er til fellst."

Grímur kvaðst ekki til annars ætla og skoraði á hann fast um vistina. Lét Grettir þá teljast og tók við honum. Hann var þar nú fram á veturinn og sat um Gretti og þótti eigi dælt að honum að ráða. Grettir grunaði hann og hafði vopn sín hjá sér nótt og dag og þorði hann aldrei að honum að ganga þá er hann vakti.

Það var einn morgun er Grímur kom heim af veiði að hann gekk inn í skálann og stappaði fótum og vildi vita hvort Grettir svæfi en hann brá sér hvergi við og lá kyrr. Saxið hékk uppi yfir Gretti. Hugsar Grímur nú að eigi mundi gefast betra færi. Gerir hann nú hark mikið svo að Gretti skyldi orð um finnast en það var ekki. Þóttist hann nú vita að Grettir mundi sofnaður og stillti að rekkjunni hljóðlega og seildist til saxins og tók ofan og brá. Í því hljóp Grettir fram á gólfið og greip saxið í því er hinn reiddi en annarri hendi í herðar Grími og rak hann niður svo mikið fall að hann lá nær í óviti.

"Gafstu svo þó að þú létir góðvættlega."

Hafði hann af honum þá sannar sögur og drap hann síðan. En nú þóttist Grettir sjá hvað það var að taka við skógarmönnum. Og leið svo veturinn. Að öngu þótti Gretti meira mein en myrkfælni.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Grettis saga - 55. kafli: 393 orð
Tími : 2 mínútur

Grettis saga: 63.185 orð
Lesin: 37.525 orð
Tími eftir: 103 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...