Grettis saga - 58. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Þá bjó í Hólmi Björn Hítdælakappi. Hann var Arngeirsson, Bersasonar goðlauss, Bálkasonar er nam Hrútafjörð sem fyrr segir. Björn var höfðingi mikill og harðfengur og hélt jafnan seka menn. Grettir kom í Hólm og tók Björn vel við honum því að vinátta hafði verið með hinum fyrrum frændum þeirra. Grettir spurði ef hann vildi honum nokkra ásjá veita.

Björn sagði að hann ætti svo sökótt um allt land að menn mundu forðast bjargir við hann um það er sekt nemur "en heldur skal eg þér gagn gera ef þú lætur þá menn vera í friði sem í minni vernd eru hvers sem þú gerir við aðra menn hér í byggð."

Grettir játaði því.

Björn mælti: "Að því hefi eg hugað að í því fjalli sem fram gengur fyrir utan Hítará mun vera vígi gott og þó fylgsni ef klóklega er um búið. Er þar bora í gegnum fjallið og sér það neðan af veginum því að þjóðgatan liggur niðri undan en sandbrekka svo brött fyrir ofan að fáir menn munu upp komast ef einn maður röskur er til varnar uppi í bælinu. Nú líst mér það helst ráð og umtalsmál að vera þar því að þaðan er hægt að leita til fanga ofan á Mýrar og út til sjóvar."

Grettir kvaðst hans forsjá hlíta mundu ef hann vildi nokkuð til leggja. Fór Grettir þá í Fagraskógafjall og bjóst þar um. Hann tjaldaði með grá vaðmáli fyrir boruna á fjallinu og þótti sem þar sæi í gegnum neðan af götunum. Réð hann þá til fanga ofan í byggðina. Þótti Mýramönnum mikill vágestur kominn er Grettir var.

Þórður Kolbeinsson bjó þá á Hítarnesi. Hann var skáld gott. Í þenna tíma var fjandskapur mikill með þeim Birni og Þórði og þótti Birni eigi verr en hálfneytt þó að Grettir gerði óspekt mönnum Þórðar eða fé.

Grettir var jafnan með Birni og reyndu þeir margan frækleik, og vísar svo til í sögu Bjarnar að þeir kölluðust jafnir að íþróttum. En það er flestra manna ætlan að Grettir hafi sterkastur verið á landinu síðan þeir Ormur Stórólfsson og Þórálfur Skólmsson lögðu af aflraunir. Þeir Grettir og Björn lögðust í einu eftir allri Hítará ofan frá vatni og út til sjóvar. Þeir færðu stéttir þær í ána er aldrei síðan hefir úr rekið hvorki með vatnavöxtum né ísalögum eða jöklagangi. Sat Grettir í Fagraskógafjalli svo einn vetur að honum voru öngvar aðfarir gervar en þó misstu þá margir síns fyrir honum og fengu ekki að gert því að hann hafði gott vígi en átti jafnan vingott við þá sem næstir honum voru.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Grettis saga - 58. kafli: 426 orð
Tími : 2 mínútur

Grettis saga: 63.185 orð
Lesin: 39.399 orð
Tími eftir: 96 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...