Grettis saga - 73. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Að áliðnu sumri fór Þorbjörn öngull með alskipaða skútu til Drangeyjar en þeir gengu fram á bjargið. Töluðust þeir þá við. Bað Þorbjörn Gretti gera fyrir orð sín að fara úr eyjunni. Grettir kvað þess öngva von.

Þorbjörn mælti: "Vera má að eg megi gera þér þvílíkt liðsinni þótt þú gerðir þetta en nú hafa bændur margir lagt upp við mig það er þeir hafa átt í eynni."

Grettir svarar: "Nú kvaðstu það upp að eg er ráðinn enn til að ganga héðan aldrei er þú sagðist eiga mestan hlut eyjarinnar. Er það vel þó að við deilum kálið. En það var satt að mér þótti erfitt að hafa alla Skagfirðinga í móti mér en hér er hvorgi til sparandi því að við munum ekki kafna í vinsældum manna. Máttu vel af leggja ferðir þínar hingað því allt er um gert fyrir mér."

"Sinnar stundar bíður hvað," sagði Þorbjörn, "og muntu ills bíða."

"Hætt mun á það verða," sagði Grettir og skildu við svo búið.

Fór Þorbjörn heim aftur.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Grettis saga - 73. kafli: 169 orð
Tími : 1 mínúta

Grettis saga: 63.185 orð
Lesin: 50.372 orð
Tími eftir: 52 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...