Grettis saga - 74. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Svo er sagt að þá er Grettir hafði tvo vetur verið í Drangey þá höfðu þeir skorið flest allt sauðfé það sem þar hafði verið. En einn hrút létu þeir lifa svo að getið sé. Hann var hösmögóttur að lit og hyrndur mjög. Að honum hentu þeir mikið gaman því að hann var svo spakur að hann stóð fyrir úti og rann eftir þeim þar sem þeir gengu. Hann gekk heim til skála á kveldin og gneri hornum sínum við hurðina.

Gott þótti þeim í eyjunni því að þar var gott til matar fyrir fugls sakir og eggja. En til eldiviðar var þar hneppst að afla og lét Grettir jafnan þrælinn kanna reka og rak þar oft kefli og bar þau heim til elda. Ekki þurftu þeir bræður að starfa utan að fara í bjarg þá er þeim líkaði.

Þrællinn tók að letjast mjög á starfanum. Gerðist hann nú möglunarsamur og ógeymnari en verið hafði. Hann skyldi geyma um eld hverja nótt og bauð Grettir mikinn varnað á því því að skip var ekki hjá þeim.

Nú bar svo til að eldur slokknaði fyrir þeim á einni nótt. Þá varð Grettir styggur við og kvað það maklegt að Glaumur væri hýddur. En hann, þrællinn, sagði illa ævi sína að liggja hér í útlegð en vera hraktur og barður ef nokkuð mistækist. Grettir spurði Illuga hvað þá væri til ráða. En hann kvaðst eigi annað sjá en þeir mundu þar verða að bíða til þess er skip bæri að.

Grettir sagði að þeim var blint til þess að ætla "mun eg heldur hætta til hvort eg kemst til lands."

"Mikið þykir mér það," segir Illugi, "því að við erum upp gefnir ef þér verður nokkuð."

"Ekki mun eg á sundi drukkna," sagði Grettir. "En þó mun eg verr trúa þrælnum héðan frá svo mikið sem oss lá hér við."

Það var vika sjóvar sem skemmst var til lands úr eyjunni.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Grettis saga - 74. kafli: 319 orð
Tími : 2 mínútur

Grettis saga: 63.185 orð
Lesin: 50.541 orð
Tími eftir: 51 mínúta
Hér er lýsing á kortinu...