Grettis saga - 77. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Þetta sumar á alþingi töluðu frændur Grettis mart um sekt hans og þótti sumum sem hann hefði úti sekt sína ef hann hefði mikið af hinu tuttugasta ári. En þeir sem sakir áttu við hann vildu það eigi og kölluðu hann margt útlegðarverk gert hafa síðan og þótti sekt hans eiga að vera því lengur. Þá var nýr lögmaður tekinn, Steinn Þorgestsson, Steinssonar mjögsiglanda, Þórissonar haustmyrkurs. Móðir Steins lögmanns var Arnóra dóttir Þórðar gellis. Steinn var vitur maður. Hann var þá beiddur úrskurðar en hann bað þá rannsaka hvort það væri hið tuttugasta sumar síðan hann var sekur ger. En það varð svo.

Þá gekk að Þórir úr Garði og leitaði að færa í alla trega þá er mætti og gat hann fundið að Grettir hafði verið einn vetur út hér svo að hann var ósekur og urðu þá nítján vetur þeir sem hann hafði í sekt verið.

Þá sagði lögsögumaður að engi skyldi lengur í sekt vera en tuttugu vetur alls þó að hann gerði útlegðarverk í þeim tímum "en fyrr mun eg öngvan úr sekt segja."

Og af þessu eyddist sýkn að sinni en þótti nú að vísu ganga að hann mundi sýkn vera á öðru sumri.

Þetta líkaði illa Skagfirðingum ef Grettir kæmist úr sektinni, báðu nú Þorbjörn öngul gera annaðhvort, leggja aftur eyjuna eða drepa Gretti. En honum þótti vandi á höndum því að hann kunni eigi ráð til að vinna Gretti en vildi þó halda eyjunni. Leitaði hann allra bragða nú að stíga yfir Gretti, annaðhvort með harðfengi eða brögðum eða á hvern hátt er hann gæti það gert.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Grettis saga - 77. kafli: 264 orð
Tími : 2 mínútur

Grettis saga: 63.185 orð
Lesin: 51.893 orð
Tími eftir: 46 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...