Grettis saga - 92. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Fóru þau nú allan veg þar til er þau komu til Rómaborgar. Svo sem þau komu fram fyrir þann er til þess var skipaður að heyra skriftamál manna þá sögðu þau sannlega allt hversu farið hafði og með hverjum klókskap þau höfðu sinn hjúskap bundið. Þau gáfu sig auðmjúklega undir þvílíkar skriftir sér til yfirbóta sem hann vildi á þau leggja. En fyrir þann skuld að þau höfðu sjálf orkast hugar á að bæta sína meinbugi án allri þröngvan og hatri af kirkjunnar formönnum þá var þeim létt um allar álögur svo sem fremst mátti vera en beðin með blíðu að þau skipuðu nú sem skynsamlegast fyrir sinni sál og lifðu hreinlega þaðan í frá að fenginni lausn allra sinna mála. Þóttu þau vel og viturlega farið hafa.

Þá mælti Spes: "Nú þykir mér vel farið hafa og lyktast okkart mál. Höfum við nú eigi ógæfu saman átt eina. Kann vera að heimskir menn dragi sér til eftirdæma okkra hina fyrri ævi. Skulum við nú gera þá endalykt okkars lífs að góðum mönnum sé þar eftir líkjanda. Nú skulum við kaupa að þeim mönnum sem hagir eru á steinsmíði að þeir geri sinn stein hvoru okkru og mættum við svo bæta það sem við höfum brotið við guð."

Nú lét Þorsteinn lagða verða peninga til steinsmíðar báðum þeim og þvílíks annars sem þau þurftu og þau máttu eigi missa til viðurlífis. Og að lyktaðri þessari smíð og á viðurkvæmilegum tíma og öllum hlutum tilbúnum skildu þau sína stundlega samvist að sjálfráði sínu að þau mættu því heldur njótandi verða heilagrar samvistu annars heims. Settist þá í sinn stein hvort þeirra og lifðu svo langan tíma sem guð vildi skipa og entu svo sína ævi.

Hafa það flestir menn sagt að Þorsteinn drómundur og hans kona Spes þykja verið hafa hinir mestu gæfumenn úr því sem ráða var. En ekki hafa börn hans né afkvæmi til Íslands komið svo að saga sé frá ger.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Grettis saga - 92. kafli: 323 orð
Tími : 2 mínútur

Grettis saga: 63.185 orð
Lesin: 62.723 orð
Tími eftir: 2 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...