Búi reið þá til Esjubergs og var Esja fóstra hans enn á lífi. Varð hún honum alls hugar fegin. Búi fór brátt í Brautarholt að finna móður sína. Var hún þá enn hraust kona. Dvaldist Búi þar um hríð.
Þorgrímur bjó þá enn að Hofi og var þá gamall mjög. Hann átti dóttur eina barna er Helga hét. Hún var ung og hin skörulegasta kona. Arngrímur bróðir hans var þá og andaður en þeir bræður höfðu skipt arfi með sér. Hafði Helgi land í Saurbæ en Vakur gerðist kaupmaður og þótti vera hinn vaskasti.
En er svo var komið völdust til vitrir menn og góðgjarnir og báru sáttmál millum þeirra Búa og Þorgríms. Og hversu margt sem hér var um talað þá fór það fram að þeir festu öll þessi mál, Búi og Þorgrímur, undir dóm hinna bestu manna. Þeim málum var upp lokið um vorið á vorþingi. Höfðu þeir það upphaf að þessum málum og sættum að Búi skyldi fá Helgu Þorgrímsdóttur en fégjöld þau sem dæmdust á Búa skyldu vera heimanfylgja Helgu. Sáu þeir það sem var að þau Búi áttu hvern pening eftir hans dag. Helgi Arngrímsson skyldi fá Ólafar Kolladóttur. Eftir það veittu hvorir öðrum tryggðir. Efldu þeir nú til veislu mikillar að Hofi því að þar skyldu vera bæði brullaupin. Tókust þessi ráð um sumarið hvortveggi.
Litlu síðar andaðist Esja. Hún gaf allt fé sitt Búa og Þuríði dóttur hans. Búi tók þá við búi á Esjubergi og setti þar á rausnarbú. Eftir brullaupið um sumarið fór Helga til Esjubergs með Búa. Var það brátt auðsætt að hún var hinn mesti skörungur. Tókst nú vinátta með þeim Þorgrími goða með mægðum. Hélt Þorgrímur nú öllu Búa til sæmdar. Var þá þangað skotið öllum málum. Búi færði sér það allvel í nyt. Varð hann hinn vinsælasti maður.
Þeim Búa og Helgu varð barna auðið. Þau áttu son þann er Ingólfur hét og annar hét Þorsteinn. Dóttur áttu þau er Hallbera hét.
Annað sumar eftir tók Þorgrímur sótt og andaðist. Var hann út leiddur að þeim sið sem þá var og drukkið eftir hann erfi.
Í þann tíma lét Vakur af förum. Tók hann við landi í Saurbæ en Helgi tók þá Hofsland af Búa. Tók þá Búi við mannaforræði. Hafði hann allt út að Nýjahrauni og inn til Botnsár. Búi bjó á Esjubergi tólf vetur og átti mikið rausnarbú. Á þeirri stundu fékk Vakur Þuríðar dóttur Búa og Ólafar.