Kjalnesinga saga - 3. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Þá er þau Andríður höfðu búið nokkura vetur í Brautarholti gátu þau son saman. Sá var vatni ausinn og kallaður Búi. Hann var brátt mikið afbragð annarra manna ungra, meiri og sterkari en aðrir menn og fríðari að sjá.

Esja bjó að Esjubergi sem fyrr var sagt. Hún bauð til fósturs Búa syni Andríðs og fæddist hann upp að Esjubergi. Búi var kallaður einrænn í uppfæðslu. Hann vildi aldrei blóta og kveðst það þykja lítilmannlegt að hokra þar að. Hann vildi og aldrei með vopn fara heldur fór hann með slöngu eina og knýtti henni um sig jafnan.

Kona er nefnd Þorgerður. Hún bjó á þeim bæ er heitir að Vatni er síðar er kallað Elliðavatn. Með henni fæddist upp son hennar er Kolfinnur hét. Hann var snemma mikill og ósýnilegur, svartur á hár. Hann lagðist á eldgróf og beit börk af viði steiktan og gætti katla móður sinna. Þorgerði þótti á þessu mein mikið. Þó vildi Kolfinnur ráða.

Þorgrímur goði gaf mikinn gaum að þeim mönnum sem ekki vildu blóta. Sættu þeir af honum hinum mestum afarkostum. Létu þeir Þorsteinn son hans þá fara mikil orð til Búa er hann vildi eigi blóta og kölluðu hann Búa hund.

Það vor er Búi var tólf vetra en Þorsteinn son Þorgríms var átján vetra stefndi Þorsteinn Búa um rangan átrúnað til Kjalarnessþings og lét varða skóggang. Þessa sök sótti Þorsteinn og varð Búi sekur skógarmaður. Eigi lét Búi sem hann vissi og öllum ferðum sínum háttaði hann sem áður. Hann fór jafnan í Brautarholt að finna föður sinn og móður og svo gerði hann enn. Af þessu öllu saman urðu fáleikar miklir millum húsa.

Um vorið er á leið er þess getið að Búi fór til Brautarholts. Hann fór jafnan einn saman. Ekki hafði hann vopnaburð meira en fyrr. Hann hafði knýtt um sig slöngu sinni. Þorsteinn sá för Búa og kenndi manninn.

Hann gekk þá til föður síns og mælti: "Hversu lengi skal svo fram fara faðir að sjá hundur er eg sótti til skógar í sumar skal hér ganga um tún svo frjálslega sem hann eigi oss öngu að svara? Sýnist mér ef slíkt þolist af þínum nábúum sem öðrum muni eigi mikið þykja fyrir að brjóta þitt boð eða hirða eigi hvað vér mælum."

Þorgrími kveðst mikið þykja til slíks haft "eða hvað viltu nú að hafast?"

Þorsteinn segir: "Ljós er eg í því. Eg vil að þú fáir mér menn. Vil eg taka Búa af lífi er hann fer heim. Mér þykir eigi það í að virða að faðir hans bjóði nokkura sæmd fyrir hann."

Þetta staðfestist með þeim feðgum. Halda þeir nú til njósnum nær Búi gengur heim hjá.

Búi dvaldist nokkurar nætur í Brautarholti og er hann bjóst heim kom Þuríður móðir hans að honum og mælti: "Það vildi eg son minn að þú færir eigi svo óvarlega. Mér er sagt að Þorsteinn hafi hörð orð til þín. Vildi eg að þú létir fara með þér hið fæsta tvo vaska menn og bærir vopn en færir eigi slyppur sem konur."

Búi segir: "Skyldur er eg að gera eftir þínum vilja en þungt er fóstru minni að annast slíka fleiri sem eg er. En vant er að sjá þótt fund okkarn Þorsteins beri saman hverjir frá kunna að segja þótt eg eigi við liðsmun nokkurn. Mun eg fara að sinni sem eg hefi ætlað."

Eftir það fer Búi leið sína austur með sjá og þegar fékk Þorsteinn njósn af. Þeir tóku þá vopn sín og urðu saman tólf. Búi var þá kominn á hæð þá er heitir Kléberg er hann sá eftirförina. Nam hann þá staðar og tók að sér steina nokkura. Þeir Þorsteinn fóru mikið og er þeir komu yfir læk þann er þar var þá heyra þeir að þaut í slöngu Búa og fló steinn. Sá kom fyrir brjóstið á einum manni Þorsteins og fékk sá þegar bana. Þá sendi Búi steina nokkura og hafði mann fyrir hverjum. Voru þeir Þorsteinn þá mjög komnir að Búa. Sneri Búi þá af hæðinni annan veg. Var þá leitið eitt í millum þeirra. Í því laust yfir myrkri því að hvergi sá af tám sér.

Þorsteinn mælti þá: "Nú er við ramman reip að draga er bæði er að eiga við hund og tröll en aftur munum vér nú fara fyrst að sinni. En vilja skal eg til hafa að sá verði fundur okkar Búa að við eigum ekki báðir frá að segja."

Eftir það sneru þeir aftur og báru förunauta sína með sér og undu allilla við sína ferð. Var það og mál manna að þeim hefði allilla til tekist ferðin.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Kjalnesinga saga - 3. kafli: 765 orð
Tími : 4 mínútur

Kjalnesinga saga: 11.004 orð
Lesin: 1.148 orð
Tími eftir: 40 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...