Laxdæla Saga - 34. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Þorvaldur hét maður son Halldórs Garpsdalsgoða. Hann bjó í Garpsdal í Gilsfirði, auðigur maður og engi hetja. Hann bað Guðrúnar Ósvífursdóttur á alþingi þá er hún var fimmtán vetra gömul. Því máli var eigi fjarri tekið en þó sagði Ósvífur að það mundi á kostum finna að þau Guðrún voru eigi jafnmenni. Þorvaldur talaði óharðfærlega, kvaðst konu biðja en ekki fjár. Síðan var Guðrún föstnuð Þorvaldi og réð Ósvífur einn máldaga og svo var skilt að Guðrún skyldi ein ráða fyrir fé þeirra þegar er þau koma í eina rekkju og eiga alls helming hvort er samfarar þeirra væru lengri eða skemmri. Hann skyldi og kaupa gripi til handa henni svo að engi jafnfjáð kona ætti betri gripi en þó mætti hann halda búi sínu fyrir þær sakir. Ríða menn nú heim af þingi. Ekki var Guðrún að þessu spurð og heldur gerði hún sér að þessu ógetið og var þó kyrrt. Brúðkaup var í Garpsdal að tvímánuði. Lítt unni Guðrún Þorvaldi og var erfið í gripakaupum. Voru engar gersemar svo miklar á Vestfjörðum að Guðrúnu þætti eigi skaplegt að hún ætti en galt fjandskap Þorvaldi ef hann keypti eigi hversu dýrar sem metnar voru.

Þórður Ingunnarson gerði sér dátt við þau Þorvald og Guðrúnu og var þar löngum og féll þar mörg umræða á um kærleika þeirra Þórðar og Guðrúnar. Það var eitt sinn að Guðrún beiddi Þorvald gripakaups. Þorvaldur kvað hana ekki hóf að kunna og sló hana kinnhest.

Þá mælti Guðrún: "Nú gafstu mér það er oss konum þykir miklu skipta að vér eigum vel að gert en það er litaraft gott og af hefir þú mig ráðið brekvísi við þig."

Það sama kveld kom Þórður þar. Guðrún sagði honum þessa svívirðing og spurði hann hverju hún skyldi þetta launa.

Þórður brosti að og mælti: "Hér kann eg gott ráð til. Gerðu honum skyrtu og brautgangs höfuðsmátt og seg skilið við hann fyrir þessar sakir."

Eigi mælti Guðrún í móti þessu og skilja þau talið.

Það sama vor segir Guðrún skilið við Þorvald og fór heim til Lauga. Síðan var gert féskipti þeirra Þorvalds og Guðrúnar og hafði hún helming fjár alls og var nú meira en áður. Tvo vetur höfðu þau ásamt verið.

Það sama vor seldi Ingunn land sitt í Króksfirði, það sem síðan heitir á Ingunnarstöðum, og fór vestur á Skálmarnes. Hana hafði átt Glúmur Geirason, sem fyrr var ritað.

Í þenna tíma bjó Hallsteinn goði á Hallsteinsnesi fyrir vestan Þorskafjörð. Hann var ríkur maður og meðallagi vinsæll.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Laxdæla Saga - 34. kafli: 414 orð
Tími : 2 mínútur

Laxdæla Saga: 62.571 orð
Lesin: 22.094 orð
Tími eftir: 162 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...