Laxdæla Saga - 43. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Nokkuru síðar ræðir Bolli við Ólaf frænda sinn og mælti: "Á þá leið er frændi komið að mér væri á því hugur að staðfesta ráð mitt og kvongast. Þykist eg nú vera fullkominn að þroska. Vildi eg til hafa þessa máls þitt orða- fullting og framkvæmd því að þeir eru hér flestir menn að mikils munu virða þín orð."

Ólafur svarar: "Þær eru flestar konur að vér munum kalla að þeim sé fullboðið þar er þú ert. Muntu og eigi hafa þetta fyrr upp kveðið en þú munt hafa statt fyrir þér hvar niður skal koma."

Bolli segir: "Ekki mun eg mér úr sveit á brott biðja konu meðan svo nálægir eru góðir ráðakostir. Eg vil biðja Guðrúnar Ósvífursdóttur. Hún er nú frægst kvenna."

Ólafur svarar: "Þar er það mál að eg vil engan hlut að eiga. Er þér Bolli það í engan stað ókunnara en mér hvert orðtak á var um kærleika með þeim Kjartani og Guðrúnu. En ef þér þykir þetta allmiklu máli skipta þá mun eg leggja engan meinleika til ef þetta semst með yður Ósvífri. Eða hefir þú þetta mál nokkuð rætt við Guðrúnu?"

Bolli kvaðst hafa á vikið um sinnsakir og kvað hana hafa ekki mjög á tekið: "Vænti eg þó að Ósvífur muni mestu um ráða þetta mál."

Ólafur kvað hann með mundu fara sem honum líkaði.

Eigi miklu síðar ríður Bolli heiman og með honum synir Ólafs, Halldór og Steinþór. Voru þeir tólf saman. Þeir ríða til Lauga. Ósvífur fagnar þeim vel og synir hans. Bolli kvaddi Ósvífur til máls við sig og hefur upp bónorð sitt og bað Guðrúnar dóttur hans.

En Ósvífur svarar á þá leið: "Svo er sem þú veist Bolli að Guðrún er ekkja og á hún sjálf svör fyrir sér. En fýsa mun eg þessa."

Gengur nú Ósvífur til fundar við Guðrúnu og segir henni að þar er kominn Bolli Þorleiksson "og biður þín. Áttu nú svör þessa máls. Mun eg hér um skjótt birta minn vilja að Bolla mun eigi frá hnekkt ef eg skal ráða."

Guðrún svarar: "Skjótlitið gerir þú þetta mál og ræddi Bolli eitt sinn þetta mál fyrir mér og veik eg heldur af og það sama er mér enn í hug."

Þá segir Ósvífur: "Þá munu margir menn mæla að þetta sé meir af ofsa mælt en mikilli fyrirhyggju ef þú neitar slíkum manni sem Bolli er. En meðan eg er uppi þá skal eg hafa forsjá fyrir yður börnum mínum um þá hluti er eg kann gerr að sjá en þér."

Og er Ósvífur tók þetta mál svo þvert þá fyrirtók Guðrún eigi fyrir sína hönd og var þó hin tregasta í öllu. Synir Ósvífurs fýsa þessa mjög, þykir sér mikil slægja til mægða við Bolla. Og hvort sem að þessum málum var setið lengur eða skemur þá réðst það af að þar fóru festar fram og kveðið á brullaupsstefnu um veturnáttaskeið. Síðan ríður Bolli heim í Hjarðarholt og segir Ólafi þessa ráðastofnun. Hann lætur sér fátt um finnast. Er Bolli heima þar til er hann skal boðið sækja. Bolli bauð Ólafi frænda sínum en Ólafur var þess ekki fljótur og fór þó að bæn Bolla. Veisla var virðuleg að Laugum. Bolli var þar eftir um veturinn. Ekki var margt í samförum þeirra Bolla af Guðrúnar hendi.

En er sumar kom þá gengu skip landa í milli. Þá spurðust þau tíðindi til Noregs af Íslandi að það var alkristið. Varð Ólafur konungur við það allglaður og gaf leyfi öllum til Íslands þeim mönnum er hann hafði í gíslingum haft og fara hvert er þeim líkaði.

Kjartan svarar því að hann var fyrir þeim mönnum öllum er í gíslingu höfðu verið haldnir: "Hafið mikla þökk og þann munum vér af taka að vitja Íslands í sumar."

Þá segir Ólafur konungur: "Eigi munum vér þessi orð aftur taka Kjartan en þó mæltum vér þetta ekki síður til annarra manna en til þín því að vér virðum svo Kjartan að þú hafir hér setið meir í vingan en gíslingu. Vildi eg að þú fýstist eigi út til Íslands þó að þú eigir þar göfga frændur því að kost muntu eiga að taka þann ráðakost í Noregi er engi mun slíkur á Íslandi."

Þá svarar Kjartan: "Vor herra launi yður þann sóma er þér hafið til mín gert síðan er eg kom á yðvart vald. En þess vænti eg að þér munuð eigi síður gefa mér orlof en þeim öðrum er þér hafið hér haldið um hríð."

Konungur kvað svo vera skyldu en segir sér torfengan slíkan mann ótiginn sem Kjartan var.

Þann vetur hafði Kálfur Ásgeirsson verið í Noregi og hafði áður um haustið komið vestan af Englandi með skip þeirra Kjartans og kaupeyri. Og er Kjartan hafði fengið orlofið til Íslandsferðar halda þeir Kálfur á búnaði sínum.

Og er skipið var albúið þá gengur Kjartan á fund Ingibjargar konungssystur. Hún fagnaði honum vel og gefur rúm að sitja hjá sér og taka þau tal saman. Segir Kjartan þá Ingibjörgu að hann hefir búið ferð sína til Íslands.

Þá svarar hún: "Meir ætlum vér Kjartan að þú hafir gert þetta við einræði þitt en menn hafi þig þessa eggjað að fara í brott af Noregi og til Íslands."

En fátt varð þeim að orðum þaðan í frá. Í þessu bili tekur Ingibjörg til mjöðdrekku er stendur hjá henni. Hún tekur þar úr motur hvítan, gullofinn, og gefur Kjartani og kvað Guðrúnu Ósvífursdóttur helsti gott að vefja honum að höfði sér "og muntu henni gefa moturinn að bekkjargjöf. Vil eg að þær Íslendinga konur sjái það að sú kona er eigi þrælaættar er þú hefir tal átt við í Noregi."

Þar var guðvefjarpoki um utan. Var það hinn ágætasti gripur.

"Hvergi mun eg leiða þig," sagði Ingibjörg, "far nú vel og heill."

Eftir það stendur Kjartan upp og hvarf til Ingibjargar og höfðu menn það fyrir satt að þeim þætti fyrir að skiljast.

Gengur nú Kjartan í brott og til konungs, sagði konungi að hann er þá búinn ferðar sinnar. Ólafur konungur leiddi Kjartan til skips og fjöldi manns með honum. Og er þeir komu þar sem skipið flaut og var þá ein bryggja á land.

Þá tók konungur til orða: "Hér er sverð Kjartan er þú skalt þiggja af mér að skilnaði okkrum. Láttu þér vopn þetta fylgjusamt vera því að eg vænti þess að þú verðir eigi vopnbitinn maður ef þú berð þetta sverð."

Það var hinn virðulegsti gripur og búið mjög.

Kjartan þakkaði konungi með fögrum orðum alla þá sæmd og virðing er hann hafði honum veitt meðan hann hafði verið í Noregi.

Þá mælti konungur: "Þess vil eg biðja þig Kjartan að þú haldir vel trúna."

Eftir það skiljast þeir konungur og Kjartan með miklum kærleik. Gengur þá Kjartan út á skip.

Konungurinn leit eftir honum og mælti: "Mikið er að Kjartani kveðið og kyni hans og mun óhægt vera atgerða við forlögum þeirra."
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Laxdæla Saga - 43. kafli: 1.142 orð
Tími : 5 mínútur

Laxdæla Saga: 62.571 orð
Lesin: 31.067 orð
Tími eftir: 127 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...