Laxdæla Saga - 47. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Eftir jól um veturinn safnar Kjartan að sér mönnum. Urðu þeir saman sex tigir manna. Ekki sagði Kjartan föður sínum hversu af stóðst um ferð þessa. Spurði Ólafur og lítt að. Kjartan hafði með sér tjöld og vistir. Ríður Kjartan nú leið sína þar til er hann kemur til Lauga. Hann biður menn stíga af baki og mælti að sumir skyldu geyma hesta þeirra en suma biður hann reisa tjöld. Í þann tíma var það mikil tíska að úti var salerni og eigi allskammt frá bænum og svo var að Laugum. Kjartan lét þar taka dyr allar á húsum og bannaði öllum mönnum útgöngu og dreitti þau inni þrjár nætur. Eftir það ríður Kjartan heim í Hjarðarholt og hver hans förunauta til síns heimilis. Ólafur lætur illa yfir þessi ferð. Þorgerður kvað eigi lasta þurfa og sagði Laugamenn til slíks gert hafa eða meiri svívirðingar.

Þá mælti Hrefna: "Áttir þú Kjartan við nokkura menn tal að Laugum?"

Hann svarar: "Lítið var bragð að því."

Segir hann að þeir Bolli skiptust við nokkurum orðum.

Þá mælti Hrefna og brosti við: "Það er mér sannlega sagt að þið Guðrún munuð hafa við talast og svo hefi eg spurt hversu hún var búin að hún hefði nú faldið sig við motrinum og semdi einkar vel."

Kjartan svarar og roðnaði mjög við. Var mönnum auðfynt að hann reiddist við er hún hafði þetta í fleymingi.

"Ekki bar mér það fyrir augu er þú segir frá Hrefna," segir Kjartan, "mundi Guðrún ekki þurfa að falda sér motri til þess að sama betur en allar konur aðrar."

Þá hætti Hrefna þessu tali.

Þeim Laugamönnum líkar illa og þótti þetta miklu meiri svívirðing og verri en þótt Kjartan hefði drepið mann eða tvo fyrir þeim. Voru þeir synir Ósvífurs óðastir á þetta mál en Bolli svafði heldur. Guðrún talaði hér fæst um en þó fundu menn það á orðum hennar að eigi væri víst hvort öðrum lægi í meira rúmi en henni. Gerist nú fullkominn fjandskapur milli Laugamanna og Hjarðhyltinga. Og er á leið veturinn fæddi Hrefna barn. Það var sveinn og var nefndur Ásgeir.

Þórarinn búandi í Tungu lýsir því að hann vildi selja Tunguland. Var það bæði að honum þurru lausafé enda þótti honum mjög vaxa þústur milli manna í héraðinu en honum var kært við hvoratveggju. Bolli þóttist þurfa að kaupa sér staðfestu því að Laugamenn höfðu fá lönd en fjölda fjár. Þau Bolli og Guðrún riðu í Tungu að ráði Ósvífurs. Þótti þeim í hönd falla að taka upp land þetta hjá sér sjálfum og bað Ósvífur þau eigi láta smátt slíta. Síðan réðu þau Þórarinn um kaup þetta og urðu ásátt hversu dýrt vera skyldi og svo það er í móti skyldi vera og var mælt til kaups með þeim Bolla. En því var kaupið eigi vottum bundið að eigi voru menn svo margir hjá að það þætti vera lögfullt. Ríða þau Bolli og Guðrún heim eftir þetta.

En er Kjartan Ólafsson spyr þessi tíðindi ríður hann þegar við tólfta mann og kom í Tungu snemma dags. Fagnar Þórarinn honum vel og bauð honum þar að vera. Kjartan kvaðst heim mundu ríða um kveldið en eiga þar dvöl nokkura. Þórarinn frétti að um erindi.

Kjartan svarar: "Það er erindi mitt hingað að ræða um landkaup það nokkuð er þér Bolli hafið stofnað því að mér er það í móti skapi ef þú selur land þetta þeim Bolla og Guðrúnu."

Þórarinn kvað sér vanhenta annað "því að verðið skal bæði ríflegt, það er Bolli hefir mér fyrir heitið landið, og gjaldast skjótt."

Kjartan mælti: "Ekki skal þig í skaða þó að Bolli kaupi eigi landið því að eg mun kaupa þvílíku verði og ekki mun þér duga mjög í móti að mæla því sem eg vil vera láta því að það mun á finnast að eg vil hér mestu ráða í héraði og gera þó meir eftir annarra manna skaplyndi en Laugamanna."

Þórarinn svarar: "Dýrt mun mér verða drottins orð um þetta mál. En það væri næst mínu skaplyndi að kaup þetta væri kyrrt sem við Bolli höfum stofnað."

Kjartan mælti: "Ekki kalla eg það landkaup er eigi er vottum bundið. Ger nú annaðhvort að þú handsala mér þegar landið að þvílíkum kostum sem þú hefir ásáttur orðið við aðra eða bú sjálfur á landi þínu ella."

Þórarinn kaus að selja honum landið. Voru nú þegar vottar að þessu kaupi. Kjartan reið heim eftir landkaupið. Þetta spurðist um alla Breiðafjarðardali. Hið sama kveld spurðist þetta til Lauga.

Þá mælti Guðrún: "Svo virðist mér Bolli sem Kjartan hafi þér gert tvo kosti nokkuru harðari en hann gerði Þórarni, að þú munt láta verða hérað þetta með litlum sóma eða sýna þig á einhverjum fundi ykkrum nokkuru óslæra en þú hefir fyrr verið."

Bolli svarar engu og gekk þegar af þessu tali. Og var nú kyrrt það er eftir var langaföstu.

Hinn þriðja dag páska reið Kjartan heiman við annan mann. Fylgdi honum Án svarti. Þeir koma í Tungu um daginn. Kjartan vill að Þórarinn ríði með honum vestur til Saurbæjar að játa þar skuldarstöðum því að Kjartan átti þar miklar fjárreiður. Þórarinn var riðinn á annan bæ. Kjartan dvaldist þar um hríð og beið hans. Þann sama dag var þar komin Þórhalla málga. Hún spyr Kjartan hvert hann ætlaði að fara. Hann kvaðst fara skyldu vestur til Saurbæjar.

Hún spyr: "Hverja skaltu leið ríða?"

Kjartan svarar: "Eg mun ríða vestur Sælingsdal en vestan Svínadal."

Hún spurði hversu lengi hann mundi vera.

Kjartan svarar: "Það er líkast að eg ríði vestan fimmtadaginn."

"Muntu reka erindi mitt?" sagði Þórhalla. "Eg á frænda vestur fyrir Hvítadal í Saurbæ. Hann hefir heitið mér hálfri mörk vaðmáls. Vildi eg að þú heimtir og hefðir með þér vestan."

Kjartan hét þessu.

Síðan kemur Þórarinn heim og ræðst til ferðar með þeim. Ríða þeir vestur um Sælingsdalsheiði og koma um kveldið á Hól til þeirra systkina. Kjartan fær þar góðar viðtökur því að þar var hin mesta vingan.

Þórhalla málga kom heim til Lauga um kveldið. Spyrja synir Ósvífurs hvað hún hitti manna um daginn. Hún kvaðst hafa hitt Kjartan Ólafsson. Þeir spurðu hvert hann ætlaði. Hún sagði slíkt af sem hún vissi "og aldregi hefir hann verið vasklegri en nú og er það eigi kynlegt að slíkum mönnum þyki allt lágt hjá sér."

Og enn mælti Þórhalla: "Auðfynt þótti mér það á að Kjartani var ekki annað jafnlétt hjalað sem um landkaup þeirra Þórarins."

Guðrún mælti: "Vel má Kjartan því allt gera djarflega það er honum líkar því að það er reynt að hann tekur enga þá ósæmd til að neinn þori að skjóta skafti að móti honum."

Bæði var hjá tali þeirra Guðrúnar Bolli og synir Ósvífurs. Þeir Óspakur svara fá og heldur til áleitni við Kjartan sem jafnan var vant. Bolli lét sem hann heyrði eigi sem jafnan er Kjartani var hallmælt því að hann var vanur að þegja eða mæla í móti.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Laxdæla Saga - 47. kafli: 1.145 orð
Tími : 5 mínútur

Laxdæla Saga: 62.571 orð
Lesin: 35.392 orð
Tími eftir: 109 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...