Laxdæla Saga - 52. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Þau Bolli og Guðrún settu bú saman um vorið í Sælingsdalstungu og varð það brátt reisulegt. Þau Bolli og Guðrún gátu son. Þeim sveini var nafn gefið og kallaður Þorleikur. Hann var vænn sveinn snemma og vel fljótlegur. Halldór Ólafsson bjó í Hjarðarholti sem fyrr var ritað. Hann var mjög fyrir þeim bræðrum.

Það vor að Kjartan var veginn tók Þorgerður Egilsdóttir vist frændsveini sínum með Þorkatli að Hafratindum. Sveinninn gætti þar fjár um sumarið. Honum var Kjartan mjög harmdauði sem öðrum. Hann mátti aldrei tala til Kjartans svo að Þorkell væri hjá því að hann mælti jafnan illa til hans og kvað hann verið hafa hvítan mann og huglausan og hermdi hann oft eftir hvernig hann hafði við orðið áverkann. Sveininum varð að þessu illa getið og fer í Hjarðarholt og segir til Halldóri og Þorgerði og bað þau viðtöku. Þorgerður bað hann vera í vist sinni til vetrar.

Sveinninn kvaðst eigi hafa þrótt til að vera þar lengur "og mundir þú mig eigi biðja þessa ef þú vissir hversu mikla raun eg hefi af þessu."

Þá gekkst Þorgerði hugur við harmtölur hans og kvaðst mundu láta honum uppi vist fyrir sína hönd.

Halldór segir: "Gef ekki gaum sveini þessum því að hann er ómerkur."

Þá svarar Þorgerður: "Lítils er sveinn verður," segir hún, "en Þorkatli hefir alls kostar illa farið þetta mál því að hann vissi fyrirsát Laugamanna fyrir Kjartani og vildi eigi segja honum en gerði sér af gaman og skemmtan af viðskiptum þeirra en hefir síðan lagt til mörg óvingjarnleg orð. Mun yður fjarri fara bræðrum að þér munuð þar til hefnda leita sem ofurefli er fyrir er þér getið eigi launað sín tillög slíkum mannfýlum sem Þorkell er."

Halldór svarar fá hér um en bað Þorgerði ráða vist sveins. Fám dögum síðar ríður Halldór heiman og þeir nokkurir menn saman. Hann fer til Hafratinda og tók hús á Þorkatli. Var Þorkell leiddur út og drepinn og varð hann ódrengilega við sitt líflát. Engu lét Halldór ræna og fór heim við svo búið. Vel lét Þorgerður yfir þessu verki og þótti minning sjá betri en engi.

Þetta sumar var kyrrt að kalla og var þó hið fæsta með þeim Bolla og Ólafssonum. Létu þeir bræður hið ólinlegsta við Bolla en hann vægði í öllu fyrir þeim frændum, þess er hann minnkaði sig í engu því að hann var hinn mesti kappsmaður. Bolli hafði fjölmennt og hélt sig ríkmannlega því að eigi skorti fé.

Steinþór Ólafsson bjó á Dönustöðum í Laxárdal. Hann átti Þuríði Ásgeirsdóttur er átt hafði Þorkell kuggi. Þeirra son hét Steinþór er kallaður var Gróslappi.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Laxdæla Saga - 52. kafli: 431 orð
Tími : 2 mínútur

Laxdæla Saga: 62.571 orð
Lesin: 39.399 orð
Tími eftir: 93 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...