Laxdæla Saga - 53. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Hinn næsta vetur eftir andlát Ólafs Höskuldssonar þá sendir Þorgerður Egilsdóttir orð Steinþóri syni sínum að áliðnum vetri að hann skyldi koma á fund hennar. Og er þau mæðgin hittast segir hún honum skil á að hún vill fara heiman og vestur til Saurbæjar að hitta Auði vinkonu sína. Hún segir Halldóri að hann skal fara. Þau voru fimm saman. Halldór fylgdi móður sinni, fara nú til þess er þau koma fyrir bæinn í Sælingsdalstungu.

Þá sneri Þorgerður hestinum upp að bænum og spurði: "Hvað heitir bær sjá?"

Halldór svarar: "Þess spyr þú eigi af því móðir að eigi vitir þú áður. Sjá bær heitir í Tungu."

"Hver býr hér?" segir hún.

Hann svarar: "Veistu það móðir."

Þá sagði Þorgerður og blés við: "Veit eg að vísu," segir hún, "að hér býr Bolli bróðurbani yðvar og furðu ólíkir urðuð þér yðrum frændum göfgum er þér viljið eigi hefna þvílíks bróður sem Kjartan var og eigi mundi svo gera Egill móðurfaðir yðvar og er illt að eiga dáðlausa sonu. Og víst ætla eg yður til þess betur fellda að þér væruð dætur föður yðvars og væruð giftar. Kemur hér að því Halldór sem mælt er að einn er auðkvisi ættar hverrar og sú er mér auðsæst ógifta Ólafs að honum glaptist svo mjög sonaeignin. Kveð eg þig af því að þessu Halldór," segir hún, "að þú þykist mest fyrir yður bræðrum. Nú munum vér aftur snúa og var þetta erindið mest að minna yður á þetta ef þér mynduð eigi áður."

Þá svarar Halldór: "Ekki munum vér þér það kenna móðir þótt oss líði úr hug þetta."

Halldór svarar hér fá um og þó þrútnaði honum mjög móður til Bolla.

Líður nú vetur sjá og er sumar kemur þá líður framan til þings. Halldór lýsir þingreið sinni og þeir bræður hans. Ríða þeir með mikinn flokk og tjalda búð þá er Ólafur hafði átt. Var þingið kyrrt og tíðindalaust. Þeir voru á þingi norðan Víðdælir, synir Guðmundar Sölmundarsonar. Barði Guðmundarson var þá átján vetra gamall. Hann var mikill maður og sterkur. Ólafssynir bjóða Barða frænda sínum heim með sér og leggja til þess mörg orð. Hallur Guðmundarson var þá eigi hér á landi. Barði tók þessu vel því að ástúðigt var með þeim frændum. Ríður nú Barði vestur af þingi með þeim Ólafssonum. Koma þeir heim í Hjarðarholt og er Barði þar um sumarið það sem eftir var.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Laxdæla Saga - 53. kafli: 397 orð
Tími : 2 mínútur

Laxdæla Saga: 62.571 orð
Lesin: 39.830 orð
Tími eftir: 91 mínúta
Hér er lýsing á kortinu...