Laxdæla Saga - 67. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Þórarinn hét maður er bjó í Langadal. Hann var goðorðsmaður og ekki ríkur. Son hans hét Auðgísl. Hann var frálegur maður. Þorgils Hölluson tók af þeim feðgum goðorðið og þótti þeim það hin mesta svívirðing. Auðgísl fór á fund Snorra goða og sagði honum þenna ójafnað og bað hann ásjá.

Snorri svarar vel að einu og tók lítinn af öllu og mælti: "Gerist hann Hölluslappi nú framgjarn og áburðarmikill. Hvort mun Þorgils enga þá menn fyrir hitta að eigi muni honum allt vilja þola? Er það víst auðsætt að hann er mikill maður og knálegur en komið hefir orðið slíkum mönnum í hel sem hann er."

Snorri gaf Auðgísli öxi rekna er hann fór í brott.

Um vorið fóru þeir Þorgils Hölluson og Þorsteinn svarti suður til Borgarfjarðar og buðu bætur sonum Helga og öðrum frændum hans. Var sæst á það mál og var ger góð sæmd. Galt Þorsteinn tvo hluti bóta vígsins en Þorgils skyldi gjalda þriðjung og skyldi greiða á þingi.

Þetta sumar reið Þorgils til þings. Og er þeir komu á hraunið að Völlum sáu þeir konu ganga í móti sér. Sú var mikil harðla. Þorgils reið í móti henni en hún veik undan og kvað þetta:

Kosti fyrðar
ef framir þykjast
og varist við svo
vélum Snorra.
Engi mun við varast,
vitr er Snorri.
Síðan gekk hún leið sína.

Þá mælti Þorgils: "Sjaldan fór svo þá er vel vildi að þú færir þá af þingi er eg fór til þings."

Þorgils ríður nú á þingið og til búðar sinnar og var kyrrt öndvert þingið.

Sá atburður varð einnhvern dag um þingið að fest voru út klæði manna til þerris. Þorgils átti blá heklu. Hún var breidd á búðarvegginn.

Menn heyrðu að heklan kvað þetta:

Hangir vot á vegg
veit hattkilan bragð,
þvígit oftar þurr,
þeygi dyl eg að hún viti tvö.
Þetta þótti hið mesta undur.

Hinn næsta dag eftir gekk Þorgils vestur yfir ána og skyldi gjalda fé sonum Helga. Hann sest niður á hölknið fyrir ofan búðirnar. Með honum var Halldór fóstbróðir hans og fleiri voru þeir saman. Þeir synir Helga komu til mótsins. Þorgils tekur nú að telja silfrið. Auðgísl Þórarinsson gekk þar hjá og í því er Þorgils nefndi tíu þá hjó Auðgísl til hans og allir þóttust heyra að höfuðið nefndi ellefu er af fauk hálsinum. Auðgísl hljóp til Vatnsfirðingabúðar en Halldór hljóp þegar eftir honum og hjó hann í búðardurunum til bana.

Þessi tíðindi komu til búðar Snorra goða að Þorgils Hölluson var veginn.

Snorri segir: "Eigi mun þér skilist hafa. Þorgils Hölluson mun vegið hafa."

Maðurinn segir: "Enda fauk höfuðið af bolnum."

"Þá má vera að satt sé," segir Snorri.

Sæst var á víg þessi sem í sögu Þorgils Höllusonar segir.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Laxdæla Saga - 67. kafli: 452 orð
Tími : 2 mínútur

Laxdæla Saga: 62.571 orð
Lesin: 49.237 orð
Tími eftir: 54 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...