Eftir það er þeir höfðu sæst, Bolli og Þorleikur og Ólafssynir, og Þorleikur hafði verið einn vetur á Íslandi þá lýsti Bolli því að hann ætlaði utan.
Snorri latti þess og mælti: "Oss þykir mikið í hættu hversu þér tekst. En ef þig fýsir fleira að ráða en nú ræður þú þá vil eg fá þér staðfestu og gera þér bú og þar með fá þér í hendur mannaforræði og halda þér til virðingar í öllu. Vænti eg að það sé auðvelt því að flestir menn leggja góðan hug til þín."
Bolli svarar: "Það hefi eg lengi haft í hug mér að ganga suður um sinnsakir. Þykir maður við það fávís verða ef hann kannar ekki víðara en hér Ísland."
Og er Snorri sér það að Bolli hefir statt þetta fyrir sér að ekki mundi tjá að letja þá býður Snorri honum að hafa fé svo mikið sem hann vildi til ferðarinnar. Bolli játar því að hafa féið mikið "vil eg," segir hann, "engis manns miskunnarmaður vera hvorki hér né utanlendis."
Síðan ríður Bolli suður til Borgarfjarðar og til Hvítár og kaupir skip það hálft að þeim mönnum er það áttu. Eiga þeir bræður þá saman skipið. Ríður Bolli síðan vestur heim. Þau Bolli og Þórdís áttu eina dóttur. Sú hét Herdís. Þeirri mey bauð Guðrún til fósturs. Hún var þá veturgömul er hún fór til Helgafells. Þórdís var og löngum þar. Var Guðrún og allvel til hennar.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu
Laxdæla Saga - 72. kafli: 238 orð
Tími : 1 mínúta
Laxdæla Saga: 62.571 orð
Lesin: 53.042 orð
Tími eftir: 39 mínútur