Laxdæla Saga - 83. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Um sumarið á alþingi fundust þeir Bolli og Guðmundur hinn ríki og töluðu margt.

Þá mælti Guðmundur: "Því vil eg lýsa Bolli að eg vil við slíka menn vingast sem þér eruð. Eg vil bjóða þér norður til mín til hálfs mánaðar veislu og þykir mér betur að þú komir."

Bolli svarar, að vísu vill hann þiggja sæmdir að slíkum manni og hét hann ferðinni.

Þá urðu og fleiri menn til að veita honum þessi vinganarmál. Arnór kerlingarnef bauð Bolla og til veislu á Miklabæ.

Maður hét Þorsteinn. Hann bjó að Hálsi. Hann var sonur Hellu-Narfa. Hann bauð Bolla til sín er hann færi norðan og Þórður af Marbæli bauð Bolla. Fóru menn af þinginu og reið Bolli heim.

Þetta sumar kom skip í Dögurðarnes og settist þar upp. Bolli tók til vistar í Tungu tólf kaupmenn. Voru þeir þar um veturinn og veitti Bolli þeim allstórmannlega. Sátu þeir um kyrrt fram yfir jól. En eftir jól ætlar Bolli að vitja heimboðanna norður og lætur hann þá járna hesta og býr ferð sína. Voru þeir átján í reið. Voru kaupmenn allir vopnaðir. Bolli reið í blárri kápu og hafði í hendi spjótið konungsnaut hið góða. Þeir ríða nú norður og koma á Marbæli til Þórðar. Var þar allvel við þeim tekið, sátu þrjár nætur í miklum fagnaði. Þaðan riðu þeir á Miklabæ til Arnórs og tók hann ágætlega vel við þeim. Var þar veisla hin besta.

Þá mælti Arnór: "Vel hefir þú gert Bolli er þú hefir mig heimsótt. Þykir mér þú hafa lýst í því við mig mikinn félagsskap. Skulu eigi eftir betri gjafir með mér en þú skalt þiggja mega. Mín vinátta skal þér og heimul vera. En nokkur grunur er mér á að þér séu eigi allir menn vinhollir í þessu héraði, þykjast sviptir vera sæmdum. Kemur það mest til þeirra Hjaltasona. Mun eg nú ráðast til ferðar með þér norður á Heljardalsheiði þá er þér farið héðan."

Bolli svarar: "Þakka vil eg yður Arnór bóndi alla sæmd er þér gerið til mín nú og fyrrum. Þykir mér og það bæta vorn flokk að þér ríðið með oss. En allt hugðum vér að fara með spekt um þessi héruð. En ef aðrir leita á oss þá má vera að vér leikum þá enn nokkuð í mót."

Síðan ræðst Arnór til ferðar með þeim og ríða nú veg sinn.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Laxdæla Saga - 83. kafli: 391 orð
Tími : 2 mínútur

Laxdæla Saga: 62.571 orð
Lesin: 59.200 orð
Tími eftir: 14 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...