Vatnsdæla saga - 21. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Nú voru þau Hrolleifur með Ingimundi tvo vetur eða þrjá. Þau skiptu eigi skapsmunum sínum svo við sonu Ingimundar sem við aðra menn en þeir þoldu það illa og einna verst Jökull því að þeir áttu svo harða og marga leika að við meiðingar stóð og kvað Jökull illa vera sendingina Sæmundar "og sætir þó hófi," segir hann, "ef eigi verður meira að" og kvað aldrei þann mannfjanda yfir þá skyldu ganga.

Engi var munur þeirra á vöxt og afl því að hvortveggi var ærið sterkur.

Ingimundur mælti: "Illa gerir þú Hrolleifur er þú stillir eigi skap þitt og launar eigi góðu gott. Nú sé eg að eigi má svo búið hlýða og mun eg fá þér bústað hér yfir í Ási."

Hrolleifur kvað sér það og eigi óvinveittra "en vera hér við illlyndi sona þinna."

"Leitt er mér að segja þig afhendan," kvað Ingimundur, "því að það hefi eg aldrei gert ef eg hefi við manni tekið."

Þorsteinn kvaðst ætla að síðar mundi verra.

Ingimundur byggði þeim Hrolleifi og Ljót móður hans bæinn í Ási og bjuggu þau þar lengi og hélt Hrolleifur sig í öllu til jafns við sonu Ingimundar.

Í þenna tíma komu út bræður tveir. Hét annar Hallormur en annar Þórormur og voru auðgir menn. Þeir voru með Ingimundi um veturinn. Hallormur hefur uppi orð sín og biður Þórdísar dóttur Ingimundar. Honum var vel svarað. Kvað Ingimundur að honum mikinn styrk sakir ríkdóms og var hún honum gefin. Fylgdi henni heiman Kárnsnesland. Þeirra son var Þorgrímur. En Þórormur bjó í Tungu hinni neðri í Vatnsdal. Þar var síðan kölluð Þórormstunga.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Vatnsdæla saga - 21. kafli: 264 orð
Tími : 2 mínútur

Vatnsdæla saga: 29.308 orð
Lesin: 11.885 orð
Tími eftir: 70 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...