Vatnsdæla saga - 31. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Þorsteinn frá Hofi var stórlátur af búi sínu við héraðsmenn. Þar var öllum mönnum matur heimill og hestaskipti og allur annar farargreiði og skylt þótti það öllum utanhéraðsmönnum að hitta Þorstein fyrstan og segja honum tíðindi úr sveitum og það er til nýlundu varð.

Eyjarengi heitir það er best er með Hofslandi. Þar áttu verkmenn Þorsteins tjald á sumrum. Þau sáu einn dag að tíu menn áðu í enginu og var kona eitt. Þeir voru allir í litklæðum. Vesl hafði einn yfir sér og slæður af góðu klæði. Þau sáu hvað þessi maður gerði. Hann brá sverði og sneið af neðan það er saurugt hafði orðið í reiðinni og kastaði á braut, það var spannarbreitt, og mælti svo að þau heyrðu að hann kvaðst eigi vilja reiða eftir sér saur. Eigi hittu þau mennina en illa þótti þeim gert að æja í engjum manna. Griðkona tók það er hann hafði af skorið og kvað þenna mann mega heita hinn mesta ofláta.

Þorsteinn spurði þau tíðinda um kveldið en þau kváðust engi segja kunna og þó nýlundu litla. Síðan sögðu þau það sem þau höfðu séð og heyrt til manna þessa og sýndu það sem hann hafði skorið af slæðunum.

Þorsteinn kvað þetta bragð tveggja hvort, að spilla gripum sínum þótt stykki á og síðan að æja í engjum manna "nokkurs heimsks manns og óráðvands ella mikils manns og ofláta. Þessir menn hafa og eigi mig hitt sem siður er til langferðamanna. Nú mun eg geta til að þar mun hafa verið Bergur hinn rakki er út hefir komið í sumar, systurson Finnboga hins ramma frá Borg úr Víðidal. Hann er rammur að afli og hinn mesti ofurkappsmaður."

Var þetta sem annað það er Þorsteinn leiddi getum um að hann varð nærgætur.

Bergur kom til Borgar og tók Finnbogi við honum allvel og spurði hann tíðinda en hann sagði slík er hann vissi. Finnbogi spurði hvort hann hefði nokkuð hitt Þorstein Ingimundarson. Bergur kvaðst eigi hann hitt hafa og riðið fyrir neðan garð. Finnbogi lét hitt þó venjulegra að hitta hann fyrst og segja honum tíðindi.

Bergur kvaðst eigi vilja lægja sig svo að finna hann "því að erindi mitt var eigi til hans."
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Vatnsdæla saga - 31. kafli: 363 orð
Tími : 2 mínútur

Vatnsdæla saga: 29.308 orð
Lesin: 18.277 orð
Tími eftir: 45 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...