Vatnsdæla saga - 45. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Vatnsdælar efldu Þorkel kröflu mjög til virðingar um alla hluti. Þeir báðu konu til handa honum og goðorðið lagðist til hans því að þeir Surtur og Högni Ingólfssynir voru þá ellefu vetra en annar fimmtán og náðu þeir eigi staðfestum sínum af Þorkeli og var Hofsland keypt til handa honum og gerðist Þorkell nú höfðingi yfir Vatnsdælum.

Lið Óttars dreifðist norður til sveita og var eigi að því gaumur gefinn. Hallfreður og Galti synir Óttars fóru norður og enn fleira barna hans. Oft kom Hallfreður til Skegg-Ávalda og talaði við dóttur hans er Kolfinna hét. Þeirrar konu fékk Grís Sæmingsson en þó lék hið sama orð á með þeim Hallfreði sem segir í sögu hans. Og eitt sinn er hann kom út, því að hann var farmaður, en Grís var á þingi þá kom Hallfreður þar sem Kolfinna var í seli og lá þar hjá henni. Og er Grís vissi þetta líkaði honum stórilla en Hallfreður fór utan þegar samsumars.

Á leiðmóti í Vatnsdal var fjölmenni mikið og tjölduðu menn búðir því að vera skyldi tveggja nátta leið. Þorkell átti búð mesta og fjölmennasta. Skegg-Ávaldi átti búð saman og Hermundur son hans og er Galti Óttarsson var genginn erinda sinna mætti hann Hermundi en hann minntist á sakir þær er Hallfreður hafði gert við þá og hljóp að Galta og drap hann og fór síðan í búð til föður síns. Og er Þorkell spyr vígið spratt hann upp með sveit sína og vill hefna.

Hildur stóð í dyrum, móðir Hermundar, og mælti: "Hitt er nú Þorkell betra ráð að hlaupa eigi svo skjótt og var þér það í hug eitt sinn þá er við fundumst að þú mundir eigi drepa son minn fyrir augum mér."

Þorkell svarar: "Nú er fleira í komið en þá vissum við von. Gakk nú út úr búðinni," kvað Þorkell, "því að þá muntu eigi sjá son þinn höggvinn fyrir augum þér ef þú gerir svo."

Hún skildi þó raunar hvað hann mælti til hjálpar manninum og þótti bæði skjótt og skörulegt hans úrræði og tók hún síðan búnaðinn af höfði sér og bjó hann með en settist í rúm hans að eigi gengju fleiri konur út en von var.

Þorkell bað þær skynda og þröngdist að þeim og mælti: "Standið þér eigi svo því að ærin er þó raun konunnar að hún sjái eigi manninn höggvinn eða heyri til."

Þeir vildu þegar inn hlaupa og drepa Hermund.

Þorkell fór þá í búðardyrnar og mælti: "Sjáum hvað oss hæfir, að drepa eigi héraðsmenn vorra sjálfra og þingmenn, og sættumst heldur."

Var þá leitað um sættir milli þeirra og var svo til þuklað að hvorirtveggju undu vel við og gervar bætur svo miklar að þeir voru vel sæmdir er taka áttu. Leysti Þorkell svo þetta mál sér af hendi með drengskap og allir undu vel við. Öllum málum var til hans skotið um héraðið því að hann þótti mestrar náttúru í Vatnsdælakyni annar en Þorsteinn Ingimundarson.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Vatnsdæla saga - 45. kafli: 489 orð
Tími : 2 mínútur

Vatnsdæla saga: 29.308 orð
Lesin: 27.307 orð
Tími eftir: 9 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...