Vatnsdæla saga - 46. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Nærri þessum tíma kom út Friðrekur biskup og Þorvaldur Koðránsson er kallaður var hinn víðförli. Þessu næst kom út annað skip og voru þar á berserkir tveir og hét Haukur hvortveggi. Þeir urðu óvinsælir af mönnum því að þeir buðu mönnum nauðung til kvenna eða fjár ella buðu þeir hólmgöngu. Þeir grenjuðu sem hundar og bitu í skjaldarrendur og óðu eld brennanda berum fótum. Þeir biskup og Þorvaldur fóru með nýjan sið að bjóða mönnum aðra trú en sú er hér var áður. Þeir voru að Giljá hinn fyrsta vetur. Landsmenn styggðust við nýgervingum þessum er þeir biskup fóru með. Koðrán tók trú og skírn í fyrsta lagi og kona hans. Ólafur að Haukagili var svo gamall að hann lá í rekkju og drakk horn.

Um haustið að veturnóttum bauð Ólafur til sín vinum sínum, einkum Þorkeli mági sínum. Þeir biskup og Þorvaldur voru þar. Vel að eins tók Þorkell þeim og lét þá vera eina saman í húsi því að þeir höfðu annan sið. Hinn fyrsta aftan veislunnar var sén ferð berserkjanna og kvíddu menn mjög við þeim. Þorkell spurði biskup ef hann vildi ráð til leggja að berserkir þessir fengju bana.

Biskup bað þá taka við trú og láta skírast en hann kvaðst mundu af ráða illmenni þessi "með yðrum atgangi."

Þorkell mælti: "Allt er þá nær ef þér sýnið mönnum jarteinir."

Biskup mælti: "Látið gera elda þrjá á gólfi í skálanum."

Og svo var gert.

Síðan vígði biskup eldana og mælti: "Nú skal skipa bekkina af mönnum þeim er bestir eru áræðis með stóra lurka því að þá bíta eigi járn og skal svo berja þá til bana."

Síðan gengu þeir nafnar inn er þeir komu og óðu eldinn fyrsta og svo annan og brunnu þá mjög og urðu nú furðulega hræddir af eldshitanum og vildu þegar að bekkjunum. Síðan voru þeir lamdir til bana og voru færðir upp með gili því er síðan heitir Haukagil.

Biskup þóttist nú kominn til kaups við Þorkel að hann tæki við trú og léti skírast.

Þorkell kvaðst eigi vilja aðra trú hafa "en þeir Þorsteinn Ingimundarson höfðu og Þórir fóstri minn. Þeir trúðu á þann er sólina hefir skapað og öllum hlutum ræður."

Biskup svarar: "Þá sömu trú boða eg með þeirri grein að trúa á einn guð, föður, son og heilagan anda, og láta skírast í vatni í hans nafni."

Það þótti Þorkeli mest af bregða er í vatni skyldi þvost og kvaðst eigi nenna enn um sinn að hafa þessa breytni en kvaðst þó hyggja að sjá mundi góð "og þessi skipan mun hér og við gangast. Ólafur bóndi mágur minn er gamall. Hann skal taka við þessi trú og allir aðrir þeir er vilja en eg mun enn bíða um tíma."

Síðan var Ólafur skírður og andaðist í hvítavoðum og enn voru skírðir fleiri menn að þeirri veislu. Þorkell var skírður þá er kristni var lögtekin á Íslandi og allir Vatnsdælar. Þorkell var mikill höfðingi. Hann lét kirkju gera á bæ sínum og hélt vel trú sína.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Vatnsdæla saga - 46. kafli: 500 orð
Tími : 2 mínútur

Vatnsdæla saga: 29.308 orð
Lesin: 27.796 orð
Tími eftir: 7 mínútur
Hér er lýsing á kortinu...