Eiríks saga rauða

6. kafli

Nú er frá því að segja að Þorsteinn Eiríksson vakti bónorð við Guðríði Þorbjarnardóttur. Var því máli vel svarað bæði af henni og svo af föður hennar og er þetta að ráðum gert að Þorsteinn gekk að eiga Guðríði og var brúðkaupið í Brattahlíð um haustið. Fór sú veisla vel fram og var mjög fjölmenn.

Þorsteinn átti bú í Vestribyggð á bæ þeim er í Lýsufirði heitir. Sá maður átti þar helming í búi er Þorsteinn hét. Sigríður hét kona hans. Fóru þau Þorsteinn heim í Lýsufjörð og Guðríður bæði. Var þar vel við þeim tekið. Voru þau þar um veturinn.

Það gerðist þar til tíðinda að sótt kom í bæ þeirra er lítið var af vetri. Garði hét þar verkstjóri. Hann var óvinsæll maður. Hann tók fyrst sótt og andaðist. Síðan var skammt að bíða að hver tók sótt að öðrum og önduðust.

Þá tók sótt Þorsteinn Eiríksson og Sigríður kona Þorsteins. Og eitt kveld fýsist hún að ganga til garðs þess er stóð í gegnt útidyrum.

Guðríður fylgdi og sóttu þær í mót dyrunum. Þá kvað Sigríður: "Ó."

Guðríður mælti: "Við höfum farið óhyggilega og áttu öngvan stað við að kalt veður komi á og förum inn sem skjótast."

Sigríður svarar: "Eigi fer eg að svo búnu. Hér er liðið allt hið dauða fyrir dyrunum og þar í sveit kenni eg Þorstein bónda þinn og kenni eg mig og er slíkt hörmung að sjá."

Og er þetta leið af mælti hún: "Förum við nú Guðríður. Nú sé eg eigi liðið."

Var þá og verkstjórinn horfinn er henni þótti áður hafa svipu í hendi og vilja berja liðið.

Síðan gengu þær inn og áður morgunn kæmi var hún önduð og var ger kista að líkinu.

Og þann sama dag ætluðu menn út að róa og leiddi Þorsteinn þá til vara og í annan lit fór hann að sjá um veiðiskap þeirra. Þá sendi Þorsteinn Eiríksson nafna sínum orð að hann kæmi til hans og sagði svo að þar var varla kyrrt og húsfreyja vildi færast á fætur og vildi undir klæðin hjá honum. Og er hann kom inn var hún komin á rekkjustokkinn hjá honum. Hann tók hana höndum og lagði bolöxi fyrir brjóstið.

Þorsteinn Eiríksson andaðist nær dagsetri. Þorsteinn bað Guðríði leggjast niður og sofa en hann kveðst vaka mundu um nóttina yfir líkunum. Hún gerir svo.

Guðríður sofnar brátt og er skammt leið á nóttina reistist hann upp Þorsteinn og kveðst vilja að Guðríður væri þangað kölluð og kveðst vilja mæla við hana: "Guð vill að þessi stund sé mér gefin til leyfis og umbóta míns ráðs."

Þorsteinn gengur á fund Guðríðar og vakti hana og bað hana signa sig og biðja sér guð hjálpa "Þorsteinn Eiríksson hefur mælt við mig að hann vill finna þig. Sjá þú nú ráð fyrir, hvorgis kann eg fýsa."

Hún svarar: "Vera kann að þetta sé ætlað til nokkurra hluta þeirra sem síðan eru í minni hafðir, þessi hinn undarlegi hlutur, en eg vænti að guðs gæsla mun yfir mér standa. Mun eg á hætta með guðs miskunn að mæla við hann því að eg má nú ekki forðast mein til mín. Vil eg síður að hann gangi víðara. En mig grunar að það sé að öðrum kosti."

Nú fór Guðríður og hitti Þorstein og sýndist henni sem hann felldi tár og mælti í eyra henni nokkur orð hljótt svo að hún ein vissi og sagði að þeir menn væru sælir er trúna héldu vel og henni fylgdi miskunn og hjálp og sagði þó að margir héldu hana illa "er það engi háttur sem hér hefir verið á Grænlandi síðan kristni var hér að setja menn niður í óvígða mold við litla yfirsöngva. Vil eg mig láta flytja til kirkju og aðra þá menn sem hér hafa andast en Garða vil eg láta brenna á báli sem skjótast því að hann veldur öllum afturgöngum sem hér hafa orðið í vetur.

Hann sagði henni og um sína hagi og kvað hennar forlög mikil mundu verða en hann bað hana varast að giftast grænlenskum manni. Bað hann og að hún legði fé þeirra til kirkju eða gefa það fátækum mönnum. Og þá hneig hann aftur í öðru.

Sá hafði háttur verið á Grænlandi síðan kristni kom út þangað að menn voru grafnir þar á bæjum, er menn önduðust, í óvígðri moldu. Skyldi setja staur upp af brjósti en síðan er kennimenn komu til þá skyldi kippa upp staurnum og hella þar í vígðu vatni og veita þar yfirsöngva þótt það væri miklu síðar.

Líkin voru færð til kirkju í Eiríksfjörð og veittir yfirsöngvar af kennimönnum.

Eftir það andaðist Þorbjörn. Bar þá féið allt undir Guðríði. Tók Eiríkur við henni og sá vel um kost hennar.
Hér er lýsing á kortinu...