Á þessu sama þingi sóttu þeir Þorgestur hinn gamli og synir Þórðar gellis Eirík hinn rauða um víg sona Þorgests er látist höfðu um haustið þá er Eiríkur sótti setstokkana á Breiðabólstað og var þetta þing allfjölmennt. Þeir höfðu áður haft setur fjölmennar.
Eiríkur bjó um þingið skip sitt til hafs í Eiríksvogi í Öxnaey og veittu þeir Eiríki Þorbjörn Vífilsson og Víga-Styr og synir Þorbrands úr Álftafirði og Eyjólfur Æsuson úr Svíney. en Styr einn var á þinginu liðveislumanna Eiríks og dró alla menn undan Þorgesti þá er hann mátti.
Styr beiddi þá Snorra goða að hann skyldi eigi fara að Eiríki eftir þingið með Þorgestlingum og hét Snorra í mót að hann mun veita honum í annað sinn þó að hann eigi vandræði að halda. Og fyrir þessi heit Styrs leiðir Snorri hjá sér þessi málaferli.
En eftir þingið fóru þeir Þorgestur með mörgum skipum inn í eyjar en Eyjólfur Æsuson leyndi skipi Eiríks í Dímunarvogi og komu þeir Styr og Þorbjörn þar til móts við Eirík. Gerðu þeir Eyjólfur og Styr þá eftir dæmum Arnkels að þeir fylgdu Eiríki á sinni ferju hvor þeirra út um Elliðaey.
Í þeirri ferð fann Eiríkur rauði Grænland og var þar þrjá vetur og fór síðan til
Íslands og var þar einn vetur áður hann fór að byggja Grænland. En það var fjórtán vetrum fyrir kristni lögtekna á
Íslandi.