Eyrbyggja saga

35. kafli

Snorri goði lét vinna Krákunesskóg allt að einu þó að Þórólfur bægifótur hefði um vandað en það fannst á Arnkatli goða að honum þótti eigi að lögum farið hafa heimildartakan á skóginum. Þótti honum Þórólfur hafa gert arfskot í því er hann hafði fengið Snorra goða skóginn.

Það var eitt sumar er Snorri sendi þræla sína að vinna skóginn og hjuggu þeir timbur mart og hlóðu saman og fóru heim eftir það. En er timbrið þornaði lét Arnkell sem hann mundi heim bera timbrið en það varð þó eigi en þó bað hann smalamann sinn verða varan við þá er Snorri léti sækja timbrið og segja sér. En er þurr var viðurinn sendi Snorri þræla sína þrjá að sækja viðinn. Hann fékk til Hauk, fylgdarmann sinn, að fylgja þrælunum til styrks við þá. Fóru þeir síðan og bundu timbrið á tólf hesta, sneru síðan heim á leið.

Smalamaður Arnkels varð var við ferð þeirra og segir Arnkatli. Hann tók vopn sín og reið eftir þeim og gat farið þá út frá Svelgsá, milli og Hóla, og þegar hann kemur eftir þeim hljóp Haukur af baki og lagði til Arnkels með spjóti, kom það í skjöldinn og varð hann eigi sár. Þá hljóp Arnkell af baki og lagði til Hauks með spjóti og kom það á hann miðjan og féll hann þar sem nú heitir Hauksá.

Og er þrælarnir sáu fall Hauks tóku þeir á rás og hljópu heim á leið og elti Arnkell þá allt um Öxnabrekkur. Hvarf þá Arnkell aftur og rak heim með sér viðarhestana, tók af þeim viðinn en lét lausa hestana og festi reipin upp á þá. Var þeim síðan vísað út með fjalli. Ganga þá hestarnir til þess er þeir komu heim til Helgafells. Spurðust nú þessi tíðindi. Stóð allt kyrrt þessi misseri.

En um vorið eftir bjó Snorri goði til vígsmálið Hauks til Þórsnessþings en Arnkell bjó frumhlaupið til óhelgi Hauki. Og fjölmenntu mjög hvorirtveggju til þingsins og gengu með miklu kappi að þessum málum. En þær urðu málalyktir að Haukur varð óheilagur að frumhlaupinu og ónýttust mál fyrir Snorra goða og riðu við það heim af þinginu. Voru þá dylgjur miklar með mönnum um sumarið.
Hér er lýsing á kortinu...