Fljótsdæla saga

21. kafli

Þeir Droplaugarsynir héldu svo ríkt vörð á um skip það er Gunnar átti að hann náði aldrei þangað að koma og öngum fjárhlut náði hann nema nokkrum gripum og þó fám. Austmennirnir fara utan um sumarið, koma til Noregs og segjast aldrei vita hvort Gunnar mundi fara til Hálogalands eða eigi. Nú segja þeir öll tíðindi og undanrekstur þann allan er hér hafði verið.

Þetta sumar ríða menn til þings og leggur Þorkell Geitisson fé til höfuðs Gunnari og fékk öllum höfðingjum umboð að hann skulu höndum taka. Allir hétu góðu um þetta en þeir þó mestu er Þorkell átti heitast vinfengi við ef hann kæmi því fram. Það var Þorkell Eyjólfsson. Hann bjó vestur að Helgafelli og átti Guðrúnu Ósvífursdóttir. Hún var í kærleikum við Helga Ásbjarnarson. Höfðu þau fyrr senst gjöfum í millum. Þó hafði Þorkell Eyjólfsson eigi vitað til þess.

Og er af líður sumarið þá lætur Helgi járna hesta þrjá. Hann fær mann til föruneytis við Gunnar og sendir hann norður á Möðrudalsheiði og svo norður hið efra til Mývatns og fara svo vestur til sveita uns hann kom til Helgafells, því að hann var sendur þangað til umsjár og halds með nógum jarteiknum til Guðrúnar Ósvífursdóttir að hún skuli taka við honum með blíðu og halda hann þar fyrst um veturinn og koma honum utan um sumarið eftir. Bar og vel í móti nú. Er Þorkell eigi heima. Hann hafði heitið Þorkeli Geitissyni að taka Gunnar af lífi ef hann næði honum. Þorkell hafði farið út í eyjar eftir skreið. Guðrún tekur við Gunnari ævar vel. Dvelst förunautur Gunnars skamma hríð. Sendir Guðrún Helga Ásbjarnarsyni góðar gjafir. Fer hann til þess er hann kemur í Austfjörðu.

Gellir hét son þeirra Guðrúnar og Þorkels. Hann var ungur maður og vel menntur og farmaður mikill. Hann kom út þetta sumar í Laxárósi en nú var hann að vist með föður og móður að Helgafelli.

Og er Gunnar hefir þar verið eina nátt þá kemur Þorkell heim síð um aftan. Þar var fjölmenni mikið. Eru gervir eldar fyrir þeim og dregin af þeim klæðin. Menn ganga fram úr stofu til eldanna. Þorkell sér að þar gengur fram maður einn í blám kyrtli og heklu grárri. Sá maður var ákaflega þreklegur en eigi hár. Hann hafði bjarta öxi í hendi. Maðurinn var ljós á hár, réttleitur og vel í yfirbragði. Þorkell spyr hver sá maður væri hinn drengilegi. Hann segir til sín og kveðst Gestur heita.

Þorkell starir á þennan mann um hríð og mælti: "Furðu líkur ertu þeim manni að frásögn er heitir Gunnar og er kallaður Þiðrandabani og hefur verið í Austfjörðum um hríð. Eða hvar er heimili þitt eða hvert ætlar þú að fara?"

Þá varð honum orðfall og svarar öngvu.

Þorkell svarar: "Svo virðist mér sem þú munir annar maður en þú segir og rétt get eg að eg fari um nafn þitt og athöfn."

Gunnar svarar: "En ef svo er sem þú segir hvað mundir þú þá til taka?"

Þorkell svarar: "Það skaltu vita brátt."

Hann sprettur nú upp og þrífur sverð eitt er lá í sætinu og hét Sköfnungur er síðan týndist með honum á Breiðafirði. Þorkell bregður þegar sverðinu og hleypur innar yfir eldinn og höggur til Gunnars. Hann bregður við öxinni og upp yfir höfuð sér. Þorkell höggur í öxarfetann en missti mannsins. Svo fast hjó Þorkell að mjög svo festi sverðið í öxarfetanum. Gunnar bregður við og færir upp öxina. Menn hlaupa innar í stofuna og sögðu Guðrúnu hvað um var í eldaskálanum.

Hún gengur fram og biður Þorkel bónda sinn stöðvast "vil eg að þú gerir honum ekki grand nema þú viljir að við skiljum okkart félag upp frá þessum degi ef þú gerir honum nokkurt mein því að Gunnar var mér sendur af vinum mínum til halds og trausts. Skal eg hann svo annast sem son minn til þess er skip ganga af Íslandi í sumar. En ef nokkur maður vill hár af höfði honum blása þá skal eg þeim líkan grimmleik gjalda sem eg má mestu á leið koma. En það mæla sumir að það sé lítið gaman þeim sem það hafa reynt að verða fyrir reiði minni. Skal eg þá og ekki af spara það er illt er ef eg verð vör við að nokkur geri honum mein. Það vil eg að þú eigir ekki við hann því að honum mun einhlít mín umsjá og velgerningur."

Þorkell svarar: "Oftast ertu ráðgjörn Guðrún. Verður oftast engin hæfa á ef þú ræður eigi því sem þú vilt. Verðum vér jafnan lítilmenni af ef þú hlutast til."

Sefast Þorkell nú brátt og rennur honum reiðin. Er Gunnar þar um veturinn í góðum fagnaði.
Hér er lýsing á kortinu...