Laxdæla Saga

50. kafli

Ólafur fór í móti líki Kjartans. Hann sendi menn suður til Borgar að segja Þorsteini Egilssyni þessi tíðindi og það með að hann vildi hafa styrk af honum til eftirmáls. Ef stórmenni slægist í móti með Ósvífurssonum þá kvaðst hann allt vildu eiga undir sér. Slík orð sendi hann norður í Víðidal til Guðmundar mágs síns og þeirra Ásgeirssona og það með að hann hafði lýst vígi Kjartans á hendur öllum mönnum þeim er í tilför höfðu verið nema Óspaki Ósvífurssyni. Hann var áður sekur um konu þá er Aldís hét. Hún var dóttir Hólmgöngu-Ljóts af Ingjaldssandi. Þeirra son var Úlfur er síðan var stallari Haralds konungs Sigurðarsonar. Hann átti Jórunni Þorbergsdóttur. Þeirra son var Jón faðir Erlends hímalda, föður Eysteins erkibiskups.

Ólafur hafði lýst vígsökinni til Þórsnessþings.

Hann lét flytja heim lík Kjartans og tjalda yfir því að þá var engi kirkja ger í Dölum. En er Ólafur spurði að Þorsteinn hafði skjótt við brugðið og hafði tekið upp mikið fjölmenni og svo þeir Víðdælir þá lætur Ólafur safna mönnum fyrir um alla Dali. Var það mikið fjölmenni.

Síðan sendi Ólafur lið það allt til Lauga og mælti svo: "Það er minn vilji að þér verjið Bolla, ef hann þarf, eigi verr en þér fylgið mér því að nær er það minni ætlan að þeir þykist nokkuð eiga eftir sínum hlut að sjá við hann, utanhéraðsmennirnir, er nú munu brátt koma á hendur oss."

Og er þessu var skipað með þessum hætti þá komu þeir Þorsteinn og svo Víðdælir og voru þeir hinir óðustu. Eggjaði Hallur Guðmundarson mest og Kálfur Ásgeirsson að ganga skyldi að Bolla og leita Ósvífurssona þar til er þeir fyndust og sögðu að þeir mundu hvergi úr héraði farnir. En með því að Ólafur latti mjög að fara þá voru borin á milli sáttmál og var það auðsótt við Bolla því að hann bað Ólaf einn ráða fyrir sína hönd en Ósvífur sá engi sín efni að mæla í móti því að honum kom ekki lið frá Snorra. Var þá lagður sættarfundur í Ljárskógum. Komu mál öll óskoruð undir Ólaf. Skyldi koma fyrir víg Kjartans svo sem Ólafi líkaði, fé og mannsektir. Síðan var slitið sættarfundi. Eigi kom Bolli til sættarfundarins og réð Ólafur því. Gerðum skyldi upp lúka á Þórsnessþingi.

Nú riðu þeir Mýramenn og Víðdælir í Hjarðarholt. Þorsteinn Kuggason bauð Ásgeiri syni Kjartans til fósturs til hugganar við Hrefnu. En Hrefna fór norður með bræðrum sínum og var mjög harmþrungin. En þó bar hún sig kurteislega því að hún var við hvern mann létt í máli. Engan tók Hrefna mann eftir Kjartan. Hún lifði litla hríð síðan er hún kom norður og er það sögn manna að hún hafi sprungið af stríði.
Hér er lýsing á kortinu...