Það ræddu þeir förunautar Halldórs að Guðrúnu þætti lítið dráp Bolla er hún slóst á leiðiorð við þá og átti allt tal við þá svo sem þeir hefðu ekki að gert það er henni væri í móti skapi.
Þá svarar Halldór: "
Ekki er það mín ætlan að Guðrúnu þyki lítið lát Bolla. Hygg eg að henni gengi það meir til leiðiorðs við oss að hún vildi vita sem gerst hverjir menn hefðu verið í þessi ferð. Er það og ekki ofmæli að Guðrún er mjög fyrir öðrum konum um allan skörungskap. Það er og eftir vonum að Guðrúnu þyki mikið lát Bolla því að það er satt að segja að eftir slíka menn er mestur skaði sem Bolli var þó að vér frændur bærum eigi giftu til samþykkis."
Eftir þetta ríða þeir heim í
Hjarðarholt.
Þessi tíðindi spyrjast brátt víða og þóttu mikil. Var Bolli hið mesta harmdauði. Guðrún sendi þegar menn á fund Snorra goða því að þar þóttust þau Ósvífur eiga allt traust er Snorri var. Snorri brá við skjótt orðsending Guðrúnar og kom í Tungu við sex tigi manna. Guðrún varð fegin komu hans. Hann bauðst að leita um sættir en Guðrúnu var lítið um það að játa því fyrir hönd Þorleiks að taka fé fyrir víg Bolla.
"
Þykir mér þú Snorri það liðsinni mér mest veita," segir Guðrún, "
að þú skiptir bústöðum við mig svo að eg sitji eigi samtýnis við þá Hjarðhyltinga."
Í þenna tíma átti Snorri deilur miklar við þá Eyrbyggja. Snorri kvaðst þetta mundu gera fyrir vinfengis sakir við Guðrúnu "
en þó muntu Guðrún þessi misseri verða að búa í Tungu."
Býst nú Snorri í brott og gaf Guðrún honum virðulegar gjafir. Ríður nú Snorri heim og var kyrrt að kalla þau misseri.
Hinn næsta vetur eftir víg Bolla fæddi Guðrún barn. Það var sveinn. Sá var Bolli nefndur. Hann var snemma mikill og vænn. Guðrún unni honum mikið. Og er vetur sá líður af og vor kom þá fer fram kaup það sem rætt hafði verið að þau mundu kaupa um lönd, Snorri og Guðrún. Réðst Snorri í Tungu og bjó þar meðan hann lifði. Guðrún fer til Helgafells og þau Ósvífur og setja þar bú saman risulegt. Vaxa þar upp synir Guðrúnar, Þorleikur og Bolli. Þorleikur var þá fjögurra vetra gamall er Bolli var veginn faðir hans.