Eiríks saga rauða - 14. kafli

Lestrarhraði
(orð á mínútu)
Annað sumar eftir fór Karlsefni til Íslands og Guðríður með honum og fór hann heim til bús síns í Reynines. Móður hans þótti sem hann hefði lítt til kostar tekið og var hún eigi heima þar hinn fyrsta vetur. En er hún reyndi að Guðríður var skörungur mikill fór hún heim. Og voru samfarar þeirra góðar.

Dóttir Snorra Karlsefnissonar var Hallfríður móðir Þorláks byskups Runólfssonar. Þau áttu son er Þorbjörn hét. Hans dóttir hét Þórunn, móðir Bjarnar byskups. Þorgeir hét sonur Snorra Karlsefnissonar, faðir Yngveldar, móður Brands byskups hins fyrra.

Og lýkur þar þessi sögu.
Leturstærð
Valinn leshraði: 250 orð á mínútu

Eiríks saga rauða - 14. kafli: 95 orð
Tími : 1 mínúta

Eiríks saga rauða: 7.911 orð
Lesin: 7.816 orð
Tími eftir: 1 mínúta
Hér er lýsing á kortinu...