Eyrbyggja saga

59. kafli

Snorri goði tók við málum Álfs hins litla öllum á hendur þeim Óspaki og gerði þá Óspak alla sekja á Þórsnessþingi. Eftir þingið fór Snorri goði heim í Tungu og sat heima til féránsdóms. Fór hann þá norður í Bitru með fjölmenni. Og er hann kom þar var Óspakur á brottu með allt sitt. Höfðu þeir farið norður á Strandir fimmtán saman og höfðu tvö skip. Þeir voru á Ströndum um sumarið og gerðu þar margar óspektir. Þeir bjuggust fyrir norður í Þaralátursfirði og söfnuðu að sér mönnum. Þar kom til þeirra sá maður er Hrafn hét og var kallaður víkingur. Hann var einn illgerðamaður og hafði legið úti á Norðurströndum. Þeir gerðu þar mikið hervirki í ránum og manndrápum, voru þar allir samt framan til veturnátta. Þá söfnuðust þeir saman Strandamenn, Ólafur Eyvindarson frá Dröngum og aðrir bændur með honum, og fóru að þeim. Höfðu þeir þá enn virki um bæ sinn þar í Þaralátursfirði og voru þá saman nær þrír tigir manna. Þeir Ólafur settust um virkið og þótti torsóttlegt vera. Töluðust þeir þá við og buðu illvirkjarnir að fara brott af Ströndum og gera þar engar óspektir þaðan af enda skyldu þeir fara frá virkinu. En með því að þeim þótti eigi í hendi liggja að eiga við þá, þá tóku þeir þenna kost og bundu það svardögum með sér. Fóru bændur við það heim.
Hér er lýsing á kortinu...