Eyrbyggja saga

60. kafli

Nú er að segja frá Snorra goða að hann fór til féránsdóms í Bitru norður sem fyrr var ritað. Og er hann kom á Eyri var Óspakur í brottu og háði Snorri goði féránsdóm sem lög stóðu til og tók upp allt sektarfé og skipti með þeim mönnum er þeir höfðu mesta óspekt gert, Álfi litla og þeim mönnum öðrum er fyrir ránum höfðu orðið. Síðan reið Snorri goði heim í Tungu og leið svo sumarið.

Þeir Óspakur fóru af Ströndum um veturnáttaskeið og höfðu tvö skip mikil. Fóru þeir inn fyrir Strandir og síðan norður yfir Flóa til Vatnsness. Gengu þeir þar upp og rændu og hlóðu bæði skipin sem borð báru, héldu síðan norður yfir Flóann í Bitru og lentu á Eyri og báru þar föng sín upp í virkið. Þar hafði kona Óspaks verið um sumarið og Glúmur sonur þeirra með tvær kýr.

Þegar hina sömu nótt, er þeir höfðu heim komið, reru þeir báðum skipunum inn til fjarðarbotns og gengu upp til bæjar í Tungu og brutu þar upp hús. Þeir tóku Þóri bónda úr rekkju sinni og leiddu hann út og drápu. Síðan rændu þeir þar fé öllu því er innan gátta var og færðu það til skipa.

Síðan reru þeir til Þambárdals, hljópu þar upp og brutu hurðir sem í Tungu. Álfur litli hafði legið í klæðum sínum. Og er hann heyrði að hurðin var upp brotin hljóp hann upp og til laundyra er voru á bak húsum. Hann komst þar út og hljóp upp eftir dal. Þeir Óspakur rændu öllu því er þeir komu höndum á og færðu til skipa sinna og fóru þá heim á Eyri með hlaðin bæði skipin og færðu föng þessi í virkið. Þeir færðu og skipin í virkið og fylltu þau bæði vatns og læstu síðan virkið, það var hið besta vígi, og sátu þar síðan um veturinn.
Hér er lýsing á kortinu...