Börkur og Eyjólfur koma um kveldið með sex tugi manna og var þar hundrað manna en hálft að Gísla. Tóku menn til drykkju um kveldið og fara menn í rekkjur eftir það og sofa.
Gísli mælti við Auði, konu sína: "
Eg hef ekki gefið hesti Þorkels hins auðga og gakk þú með mér og lát loku fyrir hurð og vaki á meðan eg geng í brott og lát frá loku er eg kem aftur."
Hann tekur spjótið Grásíðu úr örkinni og er í kápu blárri og skyrtu og í línbrókum og gengur hann síðan til
lækjar þess er fellur á milli bæjanna og tekið var neytingarvatn af hvorumtveggja bænum. Hann gengur götu til lækjarins en veður síðan lækinn til götu þeirrar er lát til hins bæjarins. Gísla var kunnug húsaskipan á
Sæbóli því að hann hafði gert þar bæinn. Þar var innangengt í fjós. Þangað gengur hann. Þar stóðu þrír tugir kúa hvorum megin; hann hnýtir saman halana á nautunum og lýkur aftur fjósinu og býr svo um að eigi má upp lúka þó að innan sé til komið. Síðan fer hann til mannhúsanna og hafði Geirmundur geymt hlutverka sinna því að loka var engin fyrir hurðum. Gengur hann hús inn og lýkur aftur hurðunni sem um aftaninn hafði verið um búið. Nú fer hann að öllu tómlega. Eftir það stendur hann og hlýðist um hvort nokkrir vektu og verður hann þess var að allir menn sofa.
Þrjú voru log í skálanum. Síðan tekur hann sefið af gólfinu og vefur saman, kastar síðan í ljósið eitt og slokknar það. Eftir það stendur hann og hyggur að hvort nokkur vaknar við og finnur hann það ekki. Þá tekur hann aðra sefvisk og kastar í það ljós er þar var næst og slekkur það. Þ:á verður hann þess var að eigi munu allir sofa því að hann sér að ungs manns hönd kemur á hið þriðja ljósið. Nú gengur hann innar eftir húsinu og að lokhvílunni þar er þau þorgrímur hvíldu og systir hans og var hnigin hurð á gátt og eru þau bæði í rekkju. Gengur hann þangað og þreifast fyrir og tekur á brjósti henni og hvíldi hún nær stokki.
Síðan mælti hún Þórdís: "
Hví er svo köld hönd þín, Þorgrímur?" og vekur hann.
Þorgrímur mælti: "
Viltu að eg snúist að þér?"
Hún hugði að hann legði höndina fyrir hana. Gísli bíður þá enn um stund og vermir höndina á serk sér en þau sofna bæði. Nú tekur hann á Þorgrími kyrrt svo að hann vaknaði. Hann hugði að hún Þórdís vekti hann og snerist þá að henni. Gísli tekur þá klæðin af þeim annarri hendi en með annarri leggur hann í gegnum Þorgrím með Grásíðu svo að í beðnum nam stað.
Nú kallar hún Þórdís og mælti: "
Vaki menn í skálanum, Þorgrímur er veginn, bóndi minn."
Gísli snýr í brott skyndilega til fjóssins, gengur þar út sem hann hafði ætlað og lýkur aftur eftir sér rammlega, snýr heim síðan hina sömu leið og má hvergi sjá spor hans. Auður lætur lok frá hurðu er hann kom heim og fer hann í sæng sína og lætur sem ekki sé í orðið eða hann eigi um ekki að vera.
En menn allir voru ölærir á
Sæbóli og vissu eigi hvað af skyldi ráða; kom þetta á þá óvara og urðu því eigi tekin þau ráð sem dygði eða þörf var á.