Laxdæla Saga

26. kafli

Höskuldur Dala-Kollsson tók sótt í elli sinni. Hann sendi eftir sonum sínum og öðrum frændum sínum og vinum.

Og er þeir komu mælti Höskuldur við þá bræður Bárð og Þorleik: "Eg hefi tekið þyngd nokkura. Hefi eg verið ósóttnæmur maður. Hygg eg að þessi sótt muni leiða mig til bana. En nú er svo sem ykkur er kunnigt að þið eruð menn skilgetnir og eigið að taka allan arf eftir mig. En sá er son minn hinn þriðji að eigi er eðliborinn. Nú vil eg beiða ykkur bræður að Ólafur sé leiddur til arfs og taki fé að þriðjungi við ykkur."

Bárður svarar fyrri og sagði að hann mundi þetta gera eftir því sem faðir hans vildi "því að eg vænti mér sóma af Ólafi í alla staði, því heldur sem hann er féríkari."

Þá mælti Þorleikur: "Fjarri er það mínum vilja að Ólafur sé arfgengur ger. Hefir Ólafur ærið fé áður. Hefir þú faðir þar marga þína muni til gefna og lengi mjög misjafnað með oss bræðrum. Mun eg eigi upp gefa þann sóma með sjálfvild er eg er til borinn."

Höskuldur mælti: "Eigi munuð þið vilja ræna mig lögum, að eg gefi tólf aura syni mínum svo stórættuðum í móðurkyn sem Ólafur er."

Þorleikur játtar því. Síðan lét Höskuldur taka gullhring Hákonarnaut, hann vó mörk, og sverðið konungsnaut er til kom hálf mörk gulls og gaf Ólafi syni sínum og þar með giftu sína og þeirra frænda, kvaðst eigi fyrir því þetta mæla að eigi vissi hann að hún hafði þar staðar numið. Ólafur tekur við gripunum og kvaðst til mundu hætta hversu Þorleiki líkaði. Honum gast illa að þessu og þótti Höskuldur hafa haft undirmál við sig.

Ólafur svarar: "Eigi mun eg gripina lausa láta Þorleikur því að þú leyfðir þvílíka fégjöf við vitni. Mun eg til þess hætta hvort eg fæ haldið."

Bárður kvaðst vilja samþykkja ráði föður síns. Eftir þetta andaðist Höskuldur. Það þótti mikill skaði, fyrst að upphafi sonum hans og öllum frændum hans og tengdamönnum þeirra og vinum. Synir hans láta verpa haug virðulegan eftir hann. Lítið var fé borið í haug hjá honum. En er því var lokið þá taka þeir bræður tal um það að þeir muni efna til erfis eftir föður sinn því að það var þá tíska í það mund.

Þá mælti Ólafur: "Svo líst mér sem ekki megi svo skjótt að þessi veislu snúa ef hún skal svo virðuleg verða sem oss þætti sóma. Er nú mjög á liðið haustið en ekki auðvelt að afla fanga til. Mun og flestum mönnum þykja torvelt, þeim er langt eiga til að sækja, á haustdegi og vís von að margir komi eigi þeir er vér vildum helst að kæmu. Mun eg og nú til þess bjóðast í sumar á þingi að bjóða mönnum til boðs þessa. Mun eg leggja fram kostnað að þriðjungi til veislunnar."

Þessu játta þeir bræður en Ólafur fer nú heim. Þeir Þorleikur og Bárður skipta fé með sér. Hlýtur Bárður föðurleifð þeirra því að til þess héldu fleiri menn því að hann var vinsælli. Þorleikur hlaut meir lausafé. Vel var með þeim bræðrum Ólafi og Bárði og blítt en heldur styggt með þeim Ólafi og Þorleiki.

Nú líður sjá hinn næsti vetur og kemur sumar og líður að þingi. Búast þeir Höskuldssynir nú til þings. Var það brátt auðsætt að Ólafur mundi mjög vera fyrir þeim bræðrum. Og er þeir koma til þings tjalda þeir búð sína og bjuggust um vel og kurteislega.
Hér er lýsing á kortinu...