Laxdæla Saga

36. kafli

Þessi tíðindi spyrjast víða og mælast illa fyrir. Þóttu það ólífismenn er slíka fjölkynngi frömdu sem þau Kotkell höfðu þá lýst. Mikið þótti Guðrúnu að um líflát Þórðar og var hún þá eigi heil og mjög framað. Guðrún fæddi svein. Sá var vatni ausinn og kallaður Þórður.

Í þenna tíma bjó Snorri goði að Helgafelli. Hann var frændi Ósvífurs og vin. Áttu þau Guðrún þar mikið traust. Þangað fór Snorri goði að heimboði. Þá tjáði Guðrún þetta vandkvæði fyrir Snorra en hann kvaðst mundu veita þeim að málum þá er honum sýndist en bauð Guðrúnu barnfóstur til hugganar við hana. Þetta þá Guðrún og kvaðst hans forsjá hlíta mundu. Þessi Þórður var kallaður köttur, faðir Stúfs skálds.

Síðan fer Gestur Oddleifsson á fund Hallsteins goða og gerði honum tvo kosti, að hann skyldi reka í brott þessa fjölkunnigu menn ella kvaðst hann mundu drepa þá "og er þó ofseinað."

Hallsteinn kaus skjótt og bað þau heldur í brott fara og nema hvergi staðar fyrir vestan Dalaheiði og kvað réttara að þau væru drepin. Síðan fóru þau Kotkell í brott og höfðu eigi meira fé en stóðhross fjögur. Var hesturinn svartur. Hann var bæði mikill og vænn og reyndur að vígi. Ekki er getið um ferð þeirra áður þau koma á Kambsnes til Þorleiks Höskuldssonar. Hann falar að þeim hrossin því að hann sá að það voru afreksgripir.

Kotkell svarar: "Gera skal þér kost á því. Tak við hrossunum en fá mér bústað nokkurn hér í nánd þér."

Þorleikur mælti: "Munu þá eigi heldur dýr hrossin því að eg hefi það spurt að þér munuð eiga heldur sökótt hér í héraði?"

Kotkell svarar: "Þetta muntu mæla til Laugamanna."

Þorleikur kvað það satt vera.

Þá mælti Kotkell: "Það horfir þó nokkuð annan veg við um sakir við Guðrúnu og bræður hennar en þér hefir sagt verið. Hafa menn ausið hrópi á oss fyrir enga sök og þigg stóðhrossin fyrir þessar sakir. Ganga og þær einar sögur frá þér að vér munum eigi uppi orpin fyrir sveitarmönnum hér ef vér höfum þitt traust."

Þorleikur slæst nú í málinu og þóttu honum fögur hrossin en Kotkell flutti kænlega málið. Þá tók Þorleikur við hrossunum. Hann fékk þeim bústað á Leiðólfsstöðum í Laxárdal. Hann birgði þau og um búfé. Þetta spyrja Laugamenn og vilja synir Ósvífurs þegar gera til þeirra Kotkels og sona hans.

Ósvífur mælti: "Höfum vér nú ráð Snorra goða og spörum þetta verk öðrum því að skammt mun líða áður búar Kotkels munu eiga spánnýjar sakir við þá og mun sem vert er Þorleiki mest mein að þeim. Munu þeir margir hans óvinir af stundu er hann hefir áður haft stundan af. En eigi mun eg letja yður að gera slíkt mein þeim Kotkatli sem yður líkar ef eigi verða aðrir til að elta þau úr héraði eða taka af lífi með öllu um það er þrír vetur eru liðnir."

Guðrún og bræður hennar sögðu svo vera skyldu. Ekki unnust þau Kotkell mjög fyrir en hvorki þurftu þau um veturinn að kaupa hey né mat og var sú byggð óvinsæl. Eigi treystust menn að raska kosti þeirra fyrir Þorleiki.
Hér er lýsing á kortinu...