Laxdæla Saga

42. kafli

Eftir það skiljast þeir Kjartan og Bolli.

Gissur og Hjalti sigla af Noregi og verða vel reiðfara, koma að þingi í Vestmannaeyjar og fara til meginlands, eiga þar stefnur og tal við frændur sína. Síðan fara þeir til alþingis og töldu trú fyrir mönnum, bæði langt erindi og snjallt, og tóku þá allir menn trú á Íslandi. Bolli reið í Hjarðarholt af þingi með Ólafi frænda sínum. Tók hann við honum með mikilli blíðu.

Bolli reið til Lauga að skemmta sér þá er hann hafði litla hríð verið heima. Var honum þar vel fagnað. Guðrún spurði vandlega um ferðir hans en því næst að Kjartani.

Bolli leysti ofléttlega úr því öllu er Guðrún spurði, kvað allt tíðindalaust um ferðir sínar "en það er kemur til Kjartans þá er það með miklum ágætum að segja satt frá hans kosti því að hann er í hirð Ólafs konungs og metinn þar umfram hvern mann. En ekki kemur mér að óvörum þó að hans hafi hér í landi litlar nytjar hina næstu vetur."

Guðrún spyr þá hvort nokkuð héldi til þess annað en vinátta þeirra konungs. Bolli segir hvert orðtak manna var á um vináttu þeirra Kjartans og Ingibjargar konungssystur og kvað það nær sinni ætlan að konungur mundi heldur gifta honum Ingibjörgu en láta hann lausan ef því væri að skipta.

Guðrún kvað það góð tíðindi "en því aðeins er Kjartani fullboðið ef hann fær góða konu" og lét þá þegar falla niður talið, gekk á brott og var allrauð.

En aðrir grunuðu hvort henni þætti þessi tíðindi svo góð sem hún lét vel yfir.

Bolli er heima í Hjarðarholti um sumarið og hafði mikinn sóma fengið í ferð þessi. Þótti öllum frændum hans og kunningjum mikils um vert hans vaskleik. Bolli hafði og mikið fé út haft. Hann kom oft til Lauga og var á tali við Guðrúnu.

Eitt sinn spurði Bolli Guðrúnu hversu hún mundi svara ef hann bæði hennar.

Þá segir Guðrún skjótt: "Ekki þarftu slíkt að ræða Bolli. Engum manni mun eg giftast meðan eg spyr Kjartan á lífi."

Bolli svarar: "Það hyggjum vér að þú verðir að sitja nokkura vetur mannlaus ef þú skalt bíða Kjartans. Mundi hann og kost hafa átt að bjóða mér þar um nokkuð erindi ef honum þætti það allmiklu máli skipta."

Skiptust þau nokkurum orðum við og þótti sinn veg hvoru. Síðan ríður Bolli heim.
Hér er lýsing á kortinu...