Laxdæla Saga

77. kafli

Þá er fjórir vetur voru liðnir frá drukknun Þorkels Eyjólfssonar þá kom skip í Eyjafjörð. Það átti Bolli Bollason. Voru þar á flestir norrænir hásetar. Bolli hafði mikið fé út og marga dýrgripi er höfðingjar höfðu gefið honum. Bolli var svo mikill skartsmaður er hann kom út úr för þessi að hann vildi engi klæði bera nema skarlatsklæði og pellsklæði og öll vopn hafði hann gullbúin. Hann var kallaður Bolli hinn prúði. Hann lýsti því fyrir skipverjum sínum að hann ætlaði vestur til héraða sinna og fékk skip sitt og varnað í hendur skipverjum sínum. Bolli ríður frá skipi við tólfta mann. Þeir voru allir í skarlatsklæðum, fylgdarmenn Bolla, og riðu í gylltum söðlum. Allir voru þeir listulegir menn en þó bar Bolli af. Hann var í pellsklæðum er Garðskonungur hafði gefið honum. Hann hafði ysta skarlatskápu rauða. Hann var gyrður Fótbít og voru að honum hjölt gullbúin og meðalkaflinn gulli vafiður. Hann hafði gylltan hjálm á höfði og rauðan skjöld á hlið og ádreginn riddari með gulli. Hann hafði glaðel í hendi sem títt er í útlöndum. Og hvar sem þeir tóku gistingar þá gáðu konur engis annars en horfa á Bolla og skart hans og þeirra félaga. Með slíkri kurteisi ríður Bolli vestur í sveitir allt þar til er hann kom til Helgafells með liði sínu. Varð Guðrún allfegin Bolla syni sínum. Dvaldist Bolli þar eigi lengi áður hann reið inn í Sælingsdalstungu og hittir Snorra mág sinn og Þórdísi konu sína. Varð þar mikill fagnafundur. Snorri bauð Bolla til sín með svo marga menn sem hann vildi. Bolli þekkist það og er hann með Snorra um veturinn og þeir menn sem norðan riðu með honum. Bolli varð frægur af ferð þessi. Snorri lagði eigi minni stund nú á að veita Bolla með allri blíðu en fyrr er hann var með honum.
Hér er lýsing á kortinu...