Laxdæla Saga

78. kafli

En er Bolli hafði verið einn vetur á Íslandi þá tók Snorri goði sótt. Sú sótt fór ekki ótt. Snorri lá mjög lengi og er sóttin óx heimti Snorri til sín frændur sína og nauðleytamenn.

Þá mælti hann til Bolla: "Það er vilji minn að þú takir hér við búi og mannaforræði eftir dag minn. Ann eg þér eigi verr virðingar en mínum sonum. Er sá og nú minn sonur eigi hér á landi er eg hygg að þeirra verði mestur maður, er Halldór er."

Síðan andaðist Snorri. Hann hafði þá sjö vetur hins sjöunda tigar. Það var einum vetri eftir fall Ólafs konungs hins helga. Svo sagði Ari prestur hinn fróði.

Snorri var í Tungu grafinn. Bolli og Þórdís tóku við búi í Tungu sem Snorri hafði mælt. Létu synir Snorra sér það vel líka. Varð Bolli mikilhæfur maður og vinsæll.

Herdís Bolladóttir óx upp að Helgafelli og var hún allra kvenna vænst. Hennar bað Ormur son Hermundar Illugasonar og var hún gefin honum. Þeirra son var Koðrán er átti Guðrúnu Sigmundardóttur. Sonur Koðráns var Hermundur er átti Úlfeiði dóttur Runólfs Ketilssonar biskups. Þeirra synir voru Ketill er ábóti var að Helgafelli og Hreinn og Koðrán og Styrmir. Dóttir þeirra var Þórvör er átti Skeggi Brandsson og er þaðan komið Skógverjakyn.

Óspakur hét son Bolla og Þórdísar. Dóttir Óspaks var Guðrún er átti Þórarinn Brandsson. Þeirra son var Brandur er setti stað að Húsafelli. Hans son var Sighvatur prestur er þar bjó lengi.

Gellir Þorkelsson kvongaðist. Hann fékk Valgerðar dóttur Þorgils Arasonar af Reykjanesi. Gellir fór utan og var með Magnúsi konungi hinum góða og þá af honum tólf aura gulls og mikið fé annað. Synir Gellis voru þeir Þorkell og Þorgils. Sonur Þorgils var Ari hinn fróði. Son Ara hét Þorgils. Hans son var Ari hinn sterki.

Nú tekur Guðrún mjög að eldast og lifði við slíka harma sem nú var frá sagt um hríð. Hún var fyrst nunna á Íslandi og einsetukona. Er það og almæli að Guðrún hafi verið göfgust jafnborinna kvenna hér á landi.

Frá því er sagt eitthvert sinn að Bolli kom til Helgafells því að Guðrúnu þótti ávallt gott er hann kom að finna hana. Bolli sat hjá móður sinni löngum og varð þeim margt talað.

Þá mælti Bolli: "Muntu segja mér það móðir að mér er forvitni á að vita? Hverjum hefir þú manni mest unnt?"

Guðrún svarar: "Þorkell var maður ríkastur og höfðingi mestur en engi var maður gervilegri en Bolli og albetur að sér. Þórður Ingunnarson var maður þeirra vitrastur og lagamaður mestur. Þorvalds get eg að engu."

Þá segir Bolli: "Skil eg þetta gerla hvað þú segir mér frá því hversu hverjum var farið bænda þinna en hitt verður enn ekki sagt hverjum þú unnir mest. Þarftu nú ekki að leyna því lengur."

Guðrún svarar: "Fast skorar þú þetta sonur minn," segir Guðrún, "en ef eg skal það nokkurum segja þá mun eg þig helst velja til þess."

Bolli bað hana svo gera.

Þá mælti Guðrún: "Þeim var eg verst er eg unni mest."

"Það hyggjum vér," svarar Bolli, "að nú sé sagt alleinarðlega" og kvað hana vel hafa gert er hún sagði þetta er hann forvitnaði.

Guðrún varð gömul kona og er það sögn manna að hún yrði sjónlaus. Guðrún andaðist að Helgafelli og þar hvílir hún.

Gellir Þorkelsson bjó að Helgafelli til elli og er margt merkilegt frá honum sagt. Hann kemur og við margar sögur þótt hans sé hér lítt getið. Hann lét gera kirkju að Helgafelli virðulega mjög, svo sem Arnór jarlaskáld vottar í erfidrápu þeirri er hann orti um Gelli og kveður þar skýrt á þetta. Og er Gellir var nokkuð hniginn á hinn efra aldur þá býr hann ferð sína af Íslandi. Hann kom til Noregs og dvaldist þar eigi lengi, fer þegar af landi á brott og gengur suður til Róms, sækir heim hinn helga Pétur postula. Hann dvelst í þeirri ferð mjög lengi, fer síðan sunnan og kemur í Danmörk. Þá tekur hann sótt og lá mjög lengi og fékk alla þjónustu. Síðan andaðist hann og hvílir í Hróiskeldu. Gellir hafði haft Sköfnung með sér og náðist hann ekki síðan. En hann hafði verið tekinn úr haugi Hrólfs kraka. Og er andlát Gellis spurðist til Íslands þá tók Þorkell son hans við föðurleifð sinni að Helgafelli en Þorgils, annar son Gellis, drukknaði ungur á Breiðafirði og allir þeir er á skipi voru með honum. Þorkell Gellisson var hið mesta nytmenni og var sagður manna fróðastur.



Bolla þáttur Bollasonar
Hér er lýsing á kortinu...