Kjalnesinga saga

7. kafli

Nú er þar til að taka er Þorgerður húsfreyja var að Vatni. Hún kom í eldhús um dag. Þar lá Kolfinnur son hennar og rétti býfur helsti langar.

Hún mælti: "Mikið má skilja," sagði hún, "til hvers menn eru fæddir í heiminn og að hverju getið skal verða. Þeir sitja tveir menn í Kollafirði og keppast um Ólöfu hina vænu og mörg karlmannleg brögð eru frá þeim sögð. Nú ganga þangað allir ungir menn til leika en þú ert sú vanmenna að þú liggur í eldgrófum til hrellingar þinni móður og væri betra að þú værir dauður en vita slíka skömm í ætt sinni."

Kolfinnur segir: "Áköf ertu nú móðir og mun brátt betur."

Þorgerður snýr á burt.

Litlu síðar rís Kolfinnur upp og gengur út og litast um, sér að ekki er framorðið. Kolfinnur var svo búinn að hann var í kollhettu og hafði kneppt blöðum milli fóta sér. Hann hafði hökulbrækur og kálfskinnskó loðna á fótum. Viðarbolungur stóð á hlaðinu. Gekk hann þangað til og tók eitt tré hátt í hönd sér, sneri síðan úr garði. Hann skaut stönginni fram fyrir sig og hljóp þar eftir síðan. Hann fór stórlega mikið. Eigi létti hann fyrr en hann kom í Kollafjörð. Var þá tekið til leiks. Ólöf sat á palli og á sína hönd henni hvor, Örn austmaður og Búi. En er Kolfinnur kom í stofu svo búinn sem fyrr var sagt þótti flestum mönnum hann vera heldur hæðilegur. Hann nam staðar á gólfinu og litast um. Hann sá hvar reiðustóll stóð á gólfinu. Hann gekk þangað og tók stólinn og setti að framan þar sem Ólöf sat. Kolfinnur settist síðan á stólinn og sat þar þann dag allan.

Um kveldið gekk hann heim. Hann gekk á til stofu. Móðir hans heilsaði honum og spurði hvar hann hefði verið. Hann sagði henni.

Hún mælti: "Hversu þótti þér þar að litast um?"

"Gott," sagði hann.

Skaltu fara þangað oftar?" sagði hún.

Kolfinnur segir:
"Ekki þykist eg lausgeðjaður," sagði hann, "í athöfnum mínum. Þykir mér nú von að eg veiti þér þetta að ganga þangað um hríð."

Hún mælti:
"Það vil eg þó að þú hafir klæði sæmileg son minn og vopn góð og mann til fylgdar," sagði hún.

"Það vil eg eigi," sagði hann, "vil eg halda búnaði mínum svo búið. Mun eg og öngan mann með mér draga."

"Þú munt ráða vilja," sagði hún.

Eftir um morguninn gekk Kolfinnur til Kollafjarðar og háttaði öllu sem hinn fyrra dag. Svo fór fram öndverðan vetur að þessir þrír menn háttuðu svo ferðum sínum. Engi þeirra mælti við annan, hvorki gott né illt. Engi mælti og það við Ólöfu að eigi heyrði annar. Öllum svaraði hún þeim kurteislega.

Þorgrímur goði spyr nú athæfi Búa og atferði en sakir þess að hann hafði nær höggið honum í drápi föður hans þá gerði hann nú eigi til hans og hefir þetta nú svo liðið nokkura stund.
Hér er lýsing á kortinu...